09.30.08

gymmalimm

Skrifað í Hreyfing kl. 22:05 af gellan

Jæja, það gengur vel hjá mér að drífa mig í ræktina, allavega svona til að byrja með.

Planið er að fara 4x í viku, bara brennsla (40-80 mín) eða lyftingar + smá brennsla til skiptis – og svo fer ég líka 1x í viku á dansnámskeið. Er einmitt að fara að kaupa mér alvöru dansskó á morgun, gaman gaman!

Ég sé fram á mikla verkefnatörn framundan en ætla að vera hörð á því að ræktin sé í forgangi (allavega framar en internethangs og blogglestur sem ég virðist alltaf finna mér tíma í!). Ég þarf að koma því upp í algjöran vana hjá mér að mæta alveg sama hvað og þannig get ég byggt upp aðeins meira þol og styrk þangað til ég get farið að taka verulega á því, hlaupa og fínisera lyftingaprógrammið.

Annað var það nú ekki, vildi bara láta vita að ég væri ekki alveg dauð úr öllum æðum. Annars mæli ég með bíómyndinni Burn after reading – þyrfti að redda mér eins einkaþjálfara og Brad Pitt er í þeirri mynd, hehe.

08.14.08

Raita

Skrifað í Mataræði kl. 18:58 af gellan

Langaði bara að deila með ykkur nýjustu uppgötvuninni minni, tilbúinni raita jógúrtsósu frá Patak’s… ég er voða mikið fyrir jógúrtsósur og hef oft gert mína eigin með ab-mjólk, hvítlauk og gúrku en þessi er voða þægileg þegar maður hefur ekki tíma fyrir þannig dúllerí. Hún inniheldur líka myntu sem gefur afar skemmtilegt bragð og kemur vel út á hollustuskalanum, 64 kcal í 100 g og það eina óholla sem hún inniheldur er pínulítið af sykri (1,8 g í 100 g).
Mér finnst voða gott að nota hana með allskyns mat og líka hægt að skella henni oná brauð, hrökkbrauð eða hrískökur eða dýfa grænmeti í hana sem snakk. Er akkúrat núna að baka hnetusteik frá móður náttúru í ofninum og ætla að hafa sósuna með henni.

Og nei, ég er ekki á prósentum hjá Patak’s en ég er opin fyrir viðræðum.

Annars er ég bara löt löt stelpa, bæði í hreyfingu og mataræði, er reyndar að sjá fyrir endann á ákveðnu verkefni sem hefur hangið yfir mér í allt sumar og valdið töluverðu stressi, mér finnst ég allavega hafa aðeins betri tíma núna til að hugsa um sjálfa mig og það er gott.

Meira síðar…

07.16.08

vinnivinn

Skrifað í Hreyfing, Mataræði kl. 17:36 af gellan

Jæja, ég er komin í ágætis rútínu og búin að setja upp lauslegt langtímaplan: ég byrja á því að mæta í ræktina 4x í viku, tek brennslu/þol og lyftingar til skiptis. Ég labba auk þess alltaf í vinnuna og heim aftur og þannig bætist við auka 40 mínútna brennsla fimm sinnum í viku.
Þegar mér finnst ég mega við meiri æfingu (kannski eftir 1-2 mánuði) þá fer ég í ræktina 5 sinnum í viku og aðlaga æfingarnar að því þegar þar að kemur. Hvort það muni síðan einhvern tímann fara upp í sex sinnum í viku verður bara að ráðast, fer eftir tímanum sem ég hef og þeim markmiðum sem ég vil ná.

Mataræði: er í ágætis rútínu-skorðum, borða lítið af óhollum mat dags daglega (ekkert nammi, snakk, kex, kökur eða skyndibita). Ætla að fínpússa mataræðið þegar ég er komin með ræktina 100% á hreint, ætla að einbeita mér að einu í einu fyrst um sinn, hafa þetta einfalt svo mér fallist ekki bara hendur og gefist upp eins og venjulega.

Og þetta plan mun eflaust þroskast og fínpússast á ýmsan veg en takmarkið er að útskrifast í júní 2009 og vera komin í frábært form í einhverjum æðislegum kjól ;uppi á sviði ;)

Er búin að léttast aðeins en ætla ekkert að einblína á þær tölur fyrst um sinn.

07.07.08

labbilabb

Skrifað í Hreyfing, Mataræði, Vigtin kl. 18:34 af gellan

Jæja, long time no see!

Kom heim úr frábærri næstum 4 vikna útskriftarferð þann 10. júní, þar var ekki verið að spara við sig í mat né drykk… kom heim nokkrum peningum fátækari og kílóum ríkari en með bros á vör og smávegis brúnku. Var voða lengi að koma mér inn í rútínuna, var að byrja í nýrri vinnu og ætlaði síðan aldeilis að tækla hlaupaplan, var með takmarkið að þjálfa mig upp í að geta hlaupið 5 km á fínu nýju hlaupaskónum mínum. Eftir nokkrar misheppnaðar og sársaukafullar skokkæfingar komst ég að þeirri niðurstöðu að hlaup hentuðu mér ekki í bili vegna beinhimnubólgu. Var ansi svekkt og fúl yfir þessu enda orðin mjög spennt fyrir því að hlaupa. Dó þó ekki ráðalaus og fann mér labbiplan á netinu hjá honum ,,vini mínum” Hal Higdon sem ég er byrjuð að fylgja, gekk núna áðan í 35 mínútur í glampandi sól og steikjandi hita með góða tónlist í eyrunum. Hugmyndin er síðan að fylgja þessu plani auk þess að lyfta tvisvar í viku og gera líka einhverjar þolæfingar aðrar en hlaup í ræktinni, s.s. þrep eða skíðavél. Voðalega finnst mér samt erfitt að fara inn á líkamsræktarstöð þegar veðrið er svona fínt! (hef einmitt ekki fengið mig til þess ennþá….) Vonandi næ ég þá smám saman að léttast og ná upp þoli svo ég geti farið að reyna við hlaupin aftur.

Mataræði: ágætt fyrir utan bakkelsi og nammi sem alltaf er frammi á borði í vinnunni og of auðvelt er að grípa í með kaffinu, ekki síst þegar maður er þreyttur og stressaður. Þarf líka að passa að reyna að borða einhvern millibita (skyr) milli morgunmatar og hádegismatar, oft er svo mikið að gera í vinnunni fyrir hádegi að ég kemst ekki einu sinni á klósettið, hvað þá til að fá mér eitthvað að borða!

Voðalega er ég orðin þreytt á því að vera alltaf á byrjunarreit. Þetta verður síðasta skiptið!

Þyngdin núna: í kringum 84 kg (var 80 áður en ég fór út)

05.02.08

x dagar

Skrifað í Óflokkað kl. 0:35 af gellan

Er búin að vera drulluslöpp, sit heima og læri og líður illa bæði andlega og líkamlega, bæði út af stressi og pirringi yfir því að komast ekki í ræktina. Fór aðeins út að labba í dag og var bara alveg búin á því þegar ég kom heim, ömurlegt!

Mataræðið hefur setið eitthvað á hakanum, reyndar er það yfirleitt fínt fyrri hluta dags en ég er farin að leyfa mér ýmislegt í kvöldmat og á kvöldin sem er nú ekki alveg eftir bókinni. Fékk mér t.d. smá ís áðan og drakk rauðvín í gær með kvöldmatnum. Ég á voða erfitt með að neita mér um hluti þegar ég vorkenni mér, ég á svo gríðarlega bágt að vera lasin og í prófum… ;)

Jæja, próf á laugardaginn, best að drífa sig í bælið svo ég geti tekið almennilega törn á morgun… vi ses.

04.29.08

16 dagar

Skrifað í Hreyfing, Mataræði kl. 23:44 af gellan

Matur:

hafragrautur með rúsínum og léttmjólk
1 glas ávaxtasafi
1 bolli grænt te
vatn

1/2 L létt-abmjólk
1 ristuð gróf brauðsneið með osti og sykurlausri sultu

2 hrökkbrauð með kotasælu, annað með dukkah, hitt með kryddi
vatn

1 bolli grænt te
1 brjóstsykur
vatn

1 diskur ýsurétturinn síðan í gær
vatn

1 glas appelsínusafi
hrökkbrauð með osti

Hreyfingin var engin, var frekar slöpp í gær þegar ég fór í ræktina og leið enn verr í dag þannig að ég ákvað að hvíla mig. Tók í staðinn massífa lærdómstörn í allan dag, er alveg ánægð með það.

17 dagar

Skrifað í Hreyfing, Mataræði kl. 18:55 af gellan

(hélt ég hefði publishað þennan póst í gær en hann virðist bara hafa farið í drafts)

Matur:

hafragrautur með rúsínum og léttmjólk
1 lítið glas ávaxtasmoothie
1 bolli grænt te
vatn

1 skyr.is drykkur
1 létt cappuccino

appelsína
vatn

1 glas goslaust Pepsí Max (oj!)
nokkrar baby gulrætur
2 hrökkbrauð með kotasælu og dukkah

3 pistasíur
1 brjóstsykur (erfitt að eiga til Tyrkisk peber á heimilinu…)

Kínversk ýsa að hætti Café Sigrúnar með grænmeti
Brún hrísgrjón
Vatn

1 stór skál Special K með léttmjólk
1 glas appelsínusafi

Hreyfing:

60 mínútna brennsla í ræktinni: 3 x 20 mínútur á skíðavél, þrepavél (sko mig, Sperra!) og bretti. 464 kcal voru spændar upp, þeirra er ekki saknað ;)

Bara að ég hefði verið jafn dugleg að læra í dag og ég var í ræktinni og mataræðinu…

04.28.08

18 dagar

Skrifað í Óflokkað kl. 0:10 af gellan

Matur:

stór skál Special K með léttmjólk
2 litlir kaffibollar

nokkrar babygulrætur og smá hummus sem ídýfa
lítið glas ávaxtasmoothie
vatn

2 hrökkbrauð, annað með léttsmurosti, hitt með kotasælu og smá pistasíu-dukkah (namm!)
1 glas pepsí max

1 epli
vatn í ræktinni

Tælensk kjúklingasúpa + hrísgrjón
1 lítill bjór

1 bolli te, 1 brjóstsykur

Hreyfing:

Lyftingar í ræktinni (neðri partur) og samtals um 20 mín. brennsla

Gott að vera byrjuð aftur – bjórinn og brjóstsykurinn hefðu að sjálfsögðu mátt missa sín og ég hefði eiginlega átt að borða meira fyrri part dags, var ansi orkulaus í ræktinni.

04.26.08

19 dagar

Skrifað í Daglegt amstur, Hreyfing, Mataræði kl. 17:23 af gellan

Vá, 19 dagar… það er alveg ótrúlega stutt!

Ég er ekki dauð úr öllum æðum enn, fór í próf á mánudaginn síðasta og búin að vera frekar slöpp síðan þá, átti síðan 25 ára afmæli á miðvikudaginn, fór út að borða á Humarhúsið með kærastanum… og fór út að borða í hádeginu í dag með vinum mínum, af sama tilfefni.
Mataræðið hefur ekki verið tipp-topp en ég er þó ekki dottin í neitt sukk. Lungnavesenið mitt hefur verið með smávegis kombakk, með hitavellu og eyrnaverk, en er orðin þokkaleg í dag svo ég held ég treysti mér í ræktina á morgun, hef annars verið dugleg að fara út að labba í síðustu viku þó ég hafi ekki farið í ræktina síðan á föstudaginn.

Ég verð að segja að það skiptir mig gríðarlegu máli að hafa staðið mig svona vel bæði í ræktinni og í mataræði í 2 vikur, það er langt síðan mér hefur tekist eitthvað sambærilegt. Ég hef lést um ca. 1 kg á þessum tíma og – það sem skiptir aðalmáli – sé bara ágætis mun á líkamanum, bumban er minni og ég er öll aðeins stinnari og flottari. Prófabakverkurinn hefur heldur ekkert látið á sér kræla.
Ég er semsagt búin að sanna það fyrir sjálfri mér að ég geti þetta alveg og að árangurinn muni pottþétt koma. Frá og með morgundeginum mun ég halda áfram á þessari góðu braut, skrifa matardagbók og halda mig við ræktarprógrammið.

Best að ráðast aðeins á bækurnar… ég er víst í prófum líka :(

Hreyfing dagsins: 50 mínútna rösklegur göngutúr í góða veðrinu

04.19.08

27 dagar

Skrifað í Hreyfing, Mataræði kl. 2:15 af gellan

Matur:

hafragrautur með léttmjólk og rúsínum
1/2 glas froosh
1/2 L vatn

1 skyrdrykkur
2 döðlur

1 lítið létt-skyrboozt

Mexíkanskur matur: tortillur með kjúkling, sýrðum rjóma, osti og allskonar, rosa gott
1 lítil coke zero

1/2 L vatn
2 lítil hrökkbrauð með léttsmurosti
1/2 glas súkkulaðisojamjólk

6 cashew hnetur
1 glas pepsi max

Hreyfing: 60 mínútna brennsla (25 á skíðavél, 35 á bretti). Tók meira að segja smá hlaup á 8,5 á brettinu.

Next page