02.28.06

Þriðjudagur

Skrifað í Daglegt amstur, Mataræði kl. 23:57 af gellan

MM: hafragrautur m. eplum og kanil (fuss! komst að því að það er sykur í þessu… boring), 1 glas safi, kaffi

Mmál: 1 banani, 1/2 L coke light (það var verið að gefa nýbakaðar vöfflur með sultu og rjóma í skólanum og ég fékk mér EKKI, dugleg!)

HM: 2 brauðsneiðar m. kotasælu, pipar og tandoori, önnur með skinkusneið líka. Slatti af baby gulrótum, 1 lúka Cheerios, nokkrar hnetur, 1 hafrakex

Mmál: 1/2 L kristall með mexican lime (var að smakka í fyrsta sinn, vel heppnaður drykkur með frískandi lime-bragði)

KM: 2 og hálf fajitas kaka með krydduðu nautahakki, grænmeti, smá osti og sýrðum rjóma, vatn

Er búin að vera fáránlega svöng í allan dag… hlýt að brenna svona miklu af því að sitja og láta heilakvarnirnar snúast, er búin að læra rosalega mikið í dag. Man ekki hvenær ég gerði það síðast… líklega fyrir jólaprófin!

02.27.06

Bolledag

Skrifað í Hreyfing, Mataræði kl. 23:06 af gellan

MM/HM: hafragrautur m. eplum og kanil, 1 vatnsdeigsbolla og 1 gerbolla m. rjóma, sultu og súkkulaði (*roðn*), 1 glas safi, kaffi

Mmál: 1 skyrdrykkur

Mmál 2: Banani

KM: fiskur síðan í gær, smá kotasæla, 1 hafrakex

Ræktin: Tók góða 65 mín. brennslu, samtals fuku 615 kkal. Var í 20 mín á skíðum, 20 mín á stigavél og 25 mín á bretti.

02.26.06

Mad

Skrifað í Mataræði kl. 22:32 af gellan

Matardagbók laugardags (nammidags):

MM: 3 rúnstykki, ýmist með osti, sultu eða skinku, 2 sneiðar vínarbrauð, 1 súkkulaðimoli, 2 glös safi, kaffi
HM: man ekki alveg hvort það var eitthvað…
Mmál: 1 matarkex og kókómjólk
Í kaffiboði: fullt af kökum og gotteríi, kók og kaffi
Um kvöldið: smá púrtvín, 3 stórir bjórar (jebb, smá djamm í gangi)

Matardagbók sunnudags:

MM/HM: 1 skál Cheerios m. léttmjólk og smá sætuefni (bara að prófa, alveg ágætt), 2 brauðsneiðar með smjörva og banana, 2 glös safi
Mmál: nokkrir bitar pasta, DDV ís með DDV vænni súkkulaðisósu
KM: holli fiskrétturinn góði og vatn

Ætlaði að baka DDV bolludagsbollur en uppskriftin var eitthvað stórundarleg, deigið var alltof þunnt og ég bætti við hveiti en það varð bara samt alltof klístrað og skrýtið… ég gafst upp og henti þessu bara. Er ekki ennþá búin að ákveða hvort ég fái mér bollu á morgun, það verður þá bara ein og væntanlega keypt í bakaríi.

02.25.06

Matardagbók föstudags

Skrifað í Mataræði kl. 0:52 af gellan

MM: 1 skál Cheerios m. léttmjólk, 1 glas safi
HM: 1 skál létt-abmjólk með 1 niðurskornum banana, smá múslí og ca. 10 dropum sætuefni (rosa gott!). 1 fittybrauðsneið með smjörva, St. Dalfour sultu og 11% osti, kaffi
KM: Austurlenskur kjúklingaréttur m. fullt af grænmeti og hrísgrjónum, vatn
KK (fór í bíó): 1/2 L coke light, 1 biti lakkrísrúlla, smávegis popp

Laxinn sem ég eldaði í gær var þessi uppskrift, mæli sterklega með henni.

02.24.06

-400 g

Skrifað í Daglegt amstur, Vigtin kl. 15:59 af gellan

Já, 400 g fuku í þessari viku og það er ég mjög sátt við, næstum því hálft kíló! Þetta er líka ideal léttingur á viku uppá að ná markmiðinu mínu. Annars var Fitz-Patrick eitthvað óhress greyið og gubbaði út úr sér tölunni 32,8% sem mér finnst frekar grunsamleg og ekki alveg í samræmi, þannig að ég tek nú passlega mikið mark á því.

Er að spá í að baka bollur í dag og hafa bollukaffi á morgun fyrir mig og heittelskaðan. Svo förum við líka í útskriftarveislu á morgun þannig að það verður fínasti nammidagur ;O)

02.23.06

Laksur, laksur, laksur og aðraferð laksur

Skrifað í Mataræði kl. 23:59 af gellan

-eins og lagið ,,Lax lax lax” myndi hljóma á því skemmtilega tungumáli færeysku…

MM: 1 skyrdrykkur, 1/2 L kók læt
Mmál: fittybrauðssamloka með kotasælu og sítrónupipar
HM: 1 banani, 1 lúka cashew hnetur
Mmál (e. mikla líkamsrækt): 2 kíví, skyrboozt úr 500 g skyri, 1 dós ananasbitum í safa, ca. 10 frosnum vínberjum, smá slettu af safa og ca. 15 dropum sætuefni sem ég bætti við eftir á, þetta varð soldið súrt (ca. 510 kkalóríur þessi máltíð)
KM: ofnbakaður lax, snæddur með dulitlum sýrðum rjóma og lime-safa, 1 smábrauð með smjörva
KK: (fór í einskonar saumaklúbb) 1 lítill diskur heitur brauðréttur, 1 lítil dós Coke light. Fékk mér ekki meira þrátt fyrir gífurlega fínar veitingar og nammi… drakk bara mitt vatn og langaði ekkert í nammið einu sinni.

Annars er ég öll í fisknum þessa dagana, stefni á að borða meiri fisk svona almennt, keypti mér lýsi í fyrsta sinn í mörg ár og á poka af bitafisk sem ég hlakka til að borða við tækifæri.

Burning up

Skrifað í Hreyfing kl. 16:32 af gellan

Skellti mér í ræktina enn á ný (fjórða skiptið síðan á sunnudaginn!) og tók alveg frábæra æfingu. Lyfti efri hluta og prófaði að lyfta léttara og mun oftar (4*15 í staðinn fyrir 3*12) því slíkt ku vera gott fyrir brennslu og að tóna vöðvana… Var búin að vera að velta þessu eitthvað fyrir mér og eftir stutt spjall við einkaþjálfara fékk ég þetta á hreint (ég greip hann nú bara glóðvolgan þar sem hann stóð aðgerðalaus í WorldClass og spurði hann að þessu… fátæki námsmaðurinn ég hefur nú ekki alveg efni á einkaþjálfun…). Svo ég ætla að prófa þetta í einhvern tíma og gá hvernig ég fíla það.

Góð brennsla svo: 25 mínútur á skíðavél = 300 kal

20 mín á bretti = 160 kal  (hljóp 1 km á 9 km/klst hraða og labbaði síðan)

Ásamt þeim 60 kal sem ég eyddi í upphitun þá eru þetta samtals 520 kal takk fyrir (að ótöldum þeim sem fuku þegar ég var að lyfta og á labbinu í ræktina og heim aftur). Gaman gaman.

02.22.06

Meðvekudagur

Skrifað í Hreyfing, Mataræði kl. 21:58 af gellan

MM: 1 skál cheerios, 1 glas safi
Mmál: 1/2 L coca cola light
HM: 1 speltbrauðsneið með mexíkósku kryddpaté og grænmeti (af booztbarnum í kringlunni, alveg ágætt bara)
Mmál: 2 fittybrauðsneiðar m. lifrarkæfu og gúrku, vatn
KM: 1 diskur mangó-chutney kjúklingur + hrísgrjón, vatn

Keypti mér sætuefni og undanrennuduft í dag, get vonandi byrjað að prófa einhverja spennandi eftirrétti fljótlega.

Ræktin: Lyfti neðri hluta og þyngdi í nokkrum tækjum. Tók svo 30 mín brennslu á skíðavél = 300 kal

Get svarið að jakki sem ég keypti mér fyrir stuttu síðan er orðinn aðeins víðari í mittið, ekki leiðinlegt ;)

02.21.06

Meh

Skrifað í Hreyfing, Mataræði kl. 21:17 af gellan

MM: 1 skál cheerios m. léttmjólk, 1 glas safi
HM: 2 brauðsneiðar með samtals 100 g reyktum laxi og léttri graflaxsósu (10% sýrður rjómi, honey dijon sinnep, dill og smá sítrónusafi), 1 skyrdós, 2 vatnsglös
Mmál: kaffi
Mmál 2: slatti af baby carrots, stórt skyrbúzt með 1 banana, frosnum jarðarberjum og safa
KM: 1 lítill diskur pasta með hvítlaukssósu, skinku og spergilkáli, vatn

Er að spá í að fara að drekka ekki ávaxtasafa nema á morgnana (þá er það svo frískandi eitthvað) og í skyrbúzt og drekka frekar vatn með mat, einföld og átakalaus leið til að fækka hitaeiningunum aðeins.

Hef alltaf lent í því að þegar ég fer í ræktina tvo daga í röð að þá langar mig svo mikið að fara þriðja daginn… Var einmitt að deyja úr löngun til að fara í ræktina í dag en ákvað að það væri skynsamlegt að taka smá pásu og reyna að læra í staðinn. Eitthvað fór sá lærdómur fyrir ofan garð og neðan, er samt eitthvað aðeins byrjuð að glugga í bækurnar…

02.20.06

The power of the mind

Skrifað í Daglegt amstur, Hreyfing, Mataræði kl. 22:21 af gellan

MM/HM: 1 skál Cheerios, 1 glas safi
Mmál: samloka m. kotasælu og sítrónupipar, 1 skyrdós, slatti af baby carrots
Mmál 2: Ein lúka salthnetur, banani
KM: Pottréttur síðan í gær ásamt núðlum, 2 glös safi
KK: 1 skál DDV ís

Var síðan mjög stolt af sjálfri mér varðandi ræktina, ég var mun lengur en ég bjóst við í skólanum í ömurlegu verkefni sem gekk mjög illa og það toppaði síðan allt saman að rétt missa af strætó, hljóp á eftir bastarðnum en hann stoppaði ekki… og rok og rigning úti. Ég hreinlega táraðist og fannst allt vera ömurlegt. Helst langaði mig til að setjast á kaffihús niðrí bæ og fá mér:

  • bjór
  • sígó
  • djúsí steikarsamloku
  • kók
  • súkkulaðiköku

eða fara heim, leggjast undir sæng og grenja soldið… Svo hugsaði ég að allavega myndi ég ekki fara í ræktina, klukkan væri orðin svo margt og ég í engu stuði og rigning úti o.s.frv.

EN

allt í einu hugsaði ég sem svo: á morgun þá verða öll þessi leiðindi gleymd og ég á eftir að verða svo ánægð ef ég dríf mig í ræktina. Er hvort sem er ekki að fara að gera neitt sérstakt í kvöld og fínt að fá bara útrás fyrir alla fýluna í tækjunum… svo ég dreif mig og tók góða brennslu, 20 mín á skíðavél og 20 mín á bretti, samtals 336 kal.

Ég er svo stolt af mér!

Next page