02.07.06

Halló hr. bloggur!

Skrifað í Daglegt amstur, Hreyfing, Mataræði, Vigtin kl. 22:35 af gellan

Jæja, fyrsta færslan mín hér, vona að ég verði dugleg að skrifa hérna, annars þjónar þetta pottþétt ekki tilgangi sínum! Sá tilgangur á að vera að drita niður á blað/síðu eins konar matar- og æfingadagbók, skrá niður mælingar og ekki síst ýmsar hugleiðingar um þessa stórskemmtilegu lífsstílsbreytingu mína.

Dagurinn var mjög góður matarlega séð, fyrir utan bolla af heitu súkkulaði með rjóma og croissant. Þetta læddist oní mig þegar ég settist inn á Kaffitár í Þjóðminjasafninu, nýbúin að missa af strætó og sárkvalin, svöng og frekar miður mín (er s.s. að prófa NuvaRing þessa dagana og veit ekki hvort hann hentar mér, meiðir mig allavega svakalega enn sem komið er.)
Morgunmatur: SpecialK með léttmjólk, 1/2 L vatn, 1 glas ávaxtasafi
Morgunkaffi: Skyrdrykkur

Hádegismatur: Samloka með kjúklingaskinku og kotasælu, 1/2 L vatn

Kaffi: Kakóbolli, croissant, latte

Millibiti: Epli

Kvöldmatur: 2 og 1/2 fajitaspönnukaka með krydduðu grísahakki (engin fita notuð við steikingu), allskonar grænmeti, 11% osti og 10% sýrðum rjóma. Engin þörf fyrir salsa eða ostasósu þegar maður hefur gott krydd á hakkið og sýrðan rjóma með. 1 glas eplasafi, 1 vatnsglas.

Ég tók einmitt þá ákvörðun í gær að sleppa öllu nammi, kexi, kökum, snakki og sykruðu gosi (nema á nammidögum einu sinni í viku). Ég borða alls ekki mikið af svona dóti, mjög lítið reyndar, en ég held það muni svaka mikið um litlu hlutina og ætla þess vegna að sleppa þessu alveg. Þetta var reyndar ansi sniðugt, í dag var einmitt síðasti dagur í Háskólakosningabaráttunni og kex, nammi og gos í boði alls staðar – en ég fékk mér ekkert, langaði eiginlega ekkert í heldur… gott að vera stolt af litlu sigrunum!
Var næstum búin að beila á ræktinni vegna sársauka og var ekki í besta skapinu heldur, en tók mig á og ákvað að taka a.m.k. létta brennsluæfingu. Þetta tókst ljómandi vel og varð að 20 mínútum á skíðavélinni (200 kal) og 30 mín á svona sitjandi hjólatæki (200 kal) en það hef ég aldrei prófað áður. Ætti að vera ansi auðvelt að sitja bara þar og lesa, kannski námsbækurnar til að spara tíma… Jamm, samtals 50 mín og 400 kal sem fengu að fjúka, takk fyrir.

Ég sé að vatnsdrykkjan er alveg að nálgast 2 L hjá mér í dag (drakk ca. 1/2 L í ræktinni), gott mál.

En já, annars er langtímatakmarkið hjá mér að komast niður í 70 kg, í dag er ég 84 og skammtímamarkmiðið er að komast niður í 80 fyrir 1. maí. Annars mun ég væntanlega gera lengri og ítarlegri markmiðalista, skrifa um mig og hvað ég legg áherslur á í mínum breytta lífsstíl. Ég er ekki á DDV en líst samt vel á margt í þeim fræðum (sérstaklega eftirréttina!)

Meira síðar… þín ástkær gellan.

Rita ummæli