03.28.06
Syndaselur
Jebb, er ekki alveg að massa hluti í augnablikinu.
Fór s.s. á fyllerí á föstudagskvöldið og drakk 8 stóra bjóra, bauð svo gestum heim til mín í gær og bauð þeim (og sjálfri mér) uppá heitan brauðrétt (fylling úr matreiðslurjóma, mexíkóost, pepperoni, sólþurrkuðum tómötum, sveppum og blaðlauk), lakkrísdúndurbita (held ég hafi borðað 3!) og bjór…
Var síðan búin að plana að fara í ræktina í dag en er að rembast við að læra í staðinn og er með svakalegan kuldahroll og langar bara ekkert út. Er líka farin að kvíða rosa mikið fyrir prófunum og finnst þá erfiðara að finna tíma fyrir ræktina. Og svo borðaði ég súkkulaðiálegg ofan á brauð áðan, uss…. (eitthvað sem kærastinn keypti, ferlegt að eiga þetta uppi í skáp þegar maður er eirðarlaus að reyna að læra og langar í sykur…)
Semsagt, það er nú ekki allt fullkomið í Gellulandi þó að síðustu póstar hafi verið á jákvæðu nótunum… eins og mér líður núna langar mig bara að taka frí frá öllu saman fram yfir próf…!
Þessi uppgjafartilfinning hlýtur samt að líða hjá, tek ekki í mál að bæta þessu öllu á mig aftur!
Jæja, er allavega búin að búa mér til námsmarkmið fyrir daginn, ætla að klára 1 stk skýrslu og 1 stk kafla… reyni að vera dugleg á einhverju sviði!
03.24.06
81,9!
Jebb, það sagði vigtin í morgun, gleði gleði…
annars er ég bara að sötra bjór núna í góðum gír og á leiðinni að hitta vinkonu mína og drekka meiri bjór… lífið er ljúft.
03.23.06
Staupahlingur
Ræktin: Tók svipað session og síðast, hörkubrennsla í ca. klukkutíma bæði á skíðavél og bretti. Fékk reyndar leiðinda hlaupasting á brettinu svo ég þurfti aðeins að hægja á mér um tíma en fór síðan aftur að hlaupa. 710 kkal fóru.
Var í allsvakalegri kolvetnaþörf eftir ræktina og keypti mér þess vegna Lakrisal (eitt besta nammi í heimi) og þegar ég kom heim fékk ég mér eina brauðsneið með hnetusmjöri og sultu (sykraðri). Ég má nú ekki leyfa mér þetta of oft en þarna hafði kolvetnacravingið yfirhöndina… Svo var fiskur í kvöldmatinn þannig að það er bara fínt.
Annars er ég farin að hlakka til að kaupa mér kjól fyrir árshátíðina, vííí… handleggirnir mínir eru orðnir það fínir að ég gæti hugsanlega verið í hlýralausum, ó mæ…
Er búin að hugsa upp verðlaun fyrir mig þegar ég verð komin niður í 80 kg: kaupa mér svosem 2-3 stk flotta hlýraboli til að vera í í ræktinni og hætta að vera í víðu hallærislegu bolunum mínum… haldiði að mín verði gella! Bíðið bara þar til ég verð á íþróttatoppnum einum saman með sixpackinn (ehemmm…)
03.21.06
Trallala
Jæja, veit ekki alveg hvort ég mun halda áfram að setja inn matardagbók, hún gerði sitt gagn þannig að ég er ósjálfrátt farin að borða oftar og hollar… sjáum til með það. Aðalmálið núna er að halda þessu við, detta ekki niður í að borða sjaldnar og takmarka nammidaginn við EINN DAG, takk fyrir, sunnudagarnir hafa orðið smávegis nammidagar líka…
Vigtin á föstudaginn sagði 82,3 sem ég er bara alsæl með
Svo breytti ég reyndar tikkernum svo hann sýni hvað ég hef lést mikið síðan ég var þyngst, í janúar 2005. Þetta virkar líka hvetjandi, að sjá hverju ég hef áorkað.
Fór bara einu sinni í ræktina í síðustu viku, bæði vegna anna og veikinda, varð lasin á föstudaginn og slöpp á laugardaginn.
En ég dreif mig í ræktina áðan, tók fyrst 30 mín á fullu á skíðavél og hljóp síðan í 30 mín á bretti á 7,5 km hraða. Hefði ekki haldið að ég gæti hlaupið svona lengi án þess að hvíla mig en þetta gat ég sæmilega auðveldlega og kom sjálfri mér mjög skemmtilega á óvart, duglega ég! Soldið stolt sko
Var líka alveg í þvílíkri endorfín vímu, alveg frábært.
750 kkal went bye-bye.
Matardagbók dagsins (hingað til)
MM: 1 skál cheerios m. smá múslí og léttmjólk, 1 glas safi, kaffi
Mmál: 1 lítill banani og 1 lítil skyrdós, vatn
HM: 1 ristuð brauðsneið m. kotasælu og karrí, kaffi
Mmál: 1 stórt vínberjaskyrbúst af booztbarnum, 1 bolli grænt te
KM: 1 og hálfur diskur kjúklingapottréttur, vatn
03.17.06
Fimmtudagur
Jæja, fór til læknis í dag og er að fara að byrja á nýrri pillu, hringurinn var bara ekki að gera sig… þessi pilla er reyndar ekki vatnslosandi eins og sú sem ég var á áður þannig að það er möguleiki á að ég þyngist, en ég veit þá af því og þarf ekki að verða of svekkt, þetta er bara vatn
Vona líka að hún fari vel í mig að öðru leyti.
Hreyfing dagsins var ca. 30 mín röskt labb, til læknisins og til baka.
MM: hafragrautur m. kanil og eplum, 1 glas safi, kaffi
HM: salatbar úr Nóatúni, allskonar pasta, kotasæla, salat, kjúklingur og ein lítil kjötbolla. Drakk svo nokkra sopa af einum versta drykk sem ég hef smakkað, nýja Lime-Toppnum með vítamínum… svei, þetta er eins og blanda af Treo og uppþvottalegi (með lime-lykt)…. varð hreinlega óglatt af þessu.
Mmál: stórt kanilskyrbúzt
KM: var boðið í rosa góðan mat: ekta ítalskt túnfiskpasta m. parmesan, salti og pipar; salat, 1/2 bjór, 2 glös djús. Og svooo kom eftirrétturinn: ofnbakaðar perur m. kanilstöng, bornar fram m. vanilluís, hlynsýrópi og söxuðum pistasíuhnetum… þetta var gott, I tells you.
03.15.06
Miðvikudagur
MM: 1 lítil sneið bananabrauð m. léttu, 1 fittybrauðsneið m. léttu og hunangsskinku, 1 glas safi, kaffi
Mmál: 1/2 L sódavatn
HM: fór á salatbarinn í Manni Lifandi, fékk mér m.a. túnfisk, egg, kúskús, fullt af grænmeti og nokkrar ristaðar hnetur, 2 örlítil brauð m. smjöri, 2 glös vatn
KM: afgangur af fiskréttinum holla og góða síðan í gær
Finnst endilega eins og ég hafi borðað meira í dag en man þó ekki eftir því… er greinilega farin að ryðga í þessu! Fæ mér svo hugsanlega einhverja kvöldhressingu, borðaði lítið í kvöldmat. Líklegast verður Cheerios eða jógúrt fyrir valinu…
Update: Arg! Beið of lengi með að fá mér holla kvöldhressingu og svo poppaði kærastinn (örbylgjupopp, venjulegt) og ég borðaði tæplega hálfan poka á móti honum… það eru rúmlega 200 kkal gott fólk! Eins gott að ég fór í ræktina í dag, allamalla…
Ræktin: 20 mín á skíðavél og 25 mín á bretti í hörkuskokki, 510 kkal sögðu bless.
Rosa góður dagur annars, mætti í skólann, hitti svo vinkonu mína í hádegismat, fór svo heim að læra og skellti mér svo í ræktina. Það er fínt ef ég næ að gera tvennt af þessu þrennu á hverjum degi: mæta í skólann, læra eða fara í ræktina… og frábært ef ég næ að gera þrennt á einum degi
03.14.06
Lærigella
Jæja, skólinn á hug minn allan þessa dagana, ca. tvö tonn af skýrslum sem þarf að skila áður en hægt er að byrja að lesa fyrir próf, gríðarlega hressandi. Mataræðið gengur bara vel (missti mig reyndar aðeins í sukkinu um helgina, úpsídeisí) en það er voða auðvelt að beila á ræktinni þegar maður ætlar að vera rosa duglegur í lærdómnum og sitja bara heima að læra í staðinn… hmmm, ekki nógu gott.
Nenni ekki að setja inn matardagbók akkúrat núna en langar að deila með ykkur alveg frábæru kanilskyrbúzti: ca. 200 g skyr, smá mjólk (magnið ræðst af því hversu þykkt búztið á að vera), sætuefni og kanill! Allt sett í blender, útkoman er ekkert ósvipuð vanilluskyri frá KEA nema smá kanilkeimur. Fínt þegar maður er fátækur af ávöxtum
03.11.06
Fékk næstum því sjokk í gær þegar ég var að skoða magann minn og hann var svo sléttur og fínn! Man varla eftir að hafa séð bumbuna mína svona litla… Var eitthvað frekar útblásin um magann þegar ég var á túr og núna er það farið, auk þess sem ég hef passað mataræðið mjög vel síðustu daga. Bara gaman
Matardagbók gærdagsins:
MM: hafragrautur m. eplum og kanil, 1 appelsína, 1 glas eplasafi, kaffi
HM: 1 skyrdrykkur, 2 lítil hafrakex m. osti (ekkert smjör), vatn
Mmál: 2 ristaðar brauðsneiðar m. léttu, St. Dalfour sultu og 17% osti, vatn
KM: Kjúklingur m. einhverri sósu a la mamma, fullt af salati, smá fetaostur í olíu, smá ofnbakaðar franskar, coke light. Fékk mér hvorki kokteilsósu né bjór þótt bæði væri í boði (og mig langaði sko alveg í bjór, duglega ég að segja nei!).
Kkaffi: baby gulrætur og niðurskorin paprika yfir Ædolinu, namm. Það var ídýfa með og ég las utan á hana: 60% fita! Fékk mér þess vegna ekki þannig, hefði verið til í að sulla saman eigin ídýfu úr sýrðum en mamma á ekki svoleiðis
Í dag er svo nammidagur, ekkert hefur nammið verið hingað til en það verður kaka í kaffinu á eftir, sjibbí! Skrepp svo vonandi í röskan göngutúr í dag með hundana.
03.10.06
82,8
Jæja, 82,8 sagði hún Viktoría mér og Fitz-Patrick tók glaður undir: 32,1%
Annars er ég búin að sjá ansi skrautlegar tölur yfir þessa túrviku, hef aðeins verið að stelast á vigtina… fyndið samt að vigtin hefur alltaf verið að rokka milli 84,0 og 83,2 en sýnir ALDREI neinar tölur á milli (83,5 t.d.), kærastinn minn hefur líka talað um þetta en hann er einmitt akkúrat líka á þessu þyngdarbili. Ég á aðra vigt inni í skáp og fer e.t.v. að nota hana í staðinn ef þetta fer að verða undarlegt.
Jæja, best að reyna að læra eitthvað smávegis áður en ég fer út á land.
ps. fékk mér engan ís í gær, gleymdi því hreinlega!
03.09.06
Fimmtudagur
MM: 1 skál cherrios m. smá múslí og undanrennu, 1 glas safi, kaffi
Mmál: 1 lítill banani, kaffi, 1/2 L vatn
HM: 1 skyrdrykkur, samloka m. skinku, grænmeti og karrýdressingu (heimatilbúinni og hollri), 1/2 L vatn
Mmál: 1 epli m. 170 g kotasælu, kanil og sætuefni (skar eplið í litla bita í þetta sinn og setti oní skálina með kotasælunni, jummí), 2 lítil hafrakex (ósæt) með smá Léttu
KM: 2 lítil hafrakex m. osti og veislumatur að hætti gellunnar: ca. 170 g ofnbakaður kryddaður lax og smávegis kartöflugratín með, sódavatn.
KKaffi: Fæ mér hugsanlega DDV súkkulaðiís á eftir með kakósósu.
Eigum kippu af ísköldum bjór í ísskápnum og verð að viðurkenna að mig langar sko alveg heilmikið í þannig… en neibb, ekkert áfengi fyrr en á sunnudaginn! Vona að ég standist líka freistinguna þegar pabbi og mamma bjóða mér vín með matnum um helgina og bjór yfir sjónvarpinu á eftir…
Ræktin: Ætlaði bara að taka ca. 45 mín brennslu en endaði á að vera rúmlega 90 mín og 800 kkal fátækari. Svona er það þegar það byrjar allt í einu þáttur í sjónvarpinu sem mann langar að sjá