04.12.06

Allt á réttri leið

Skrifað í Hreyfing, Mataræði kl. 22:48 af gellan

Matardagbók fyrir daginn í dag:

MM: 1 skál hafragrautur m. léttmjólk, sætuefni og kanil, 1 glas safi

HM: 2 brauðsneiðar, önnur með lifrarkæfu og gúrku, hin með 2 sneiðum kalkúnaskinku og smávegis sýrðum léttum (sniðug nýung, aðeins vatnskenndari og súrari en 10% sýrður en eitthvað sem vel er hægt að venjast), 1 glas safi, 1 gúrkubiti, kaffi

Millimál: 1 lúka af þurrkuðum apríkósum, 1 skyrdrykkur

KM: Grillað svínakjöt, 1 lítil bökuð kartafla, pínu kotasæla, pínu sýrður léttur, salat, 2 lítil brauð með smjörva, 1 glas g&t (skamm!), 1 glas rauðvín (semiskamm), 1 glas Pepsi Max, vatn.

Ágætis dagur fyrir utan áfengið og auka brauð með kvöldmatnum (það er erfitt að standast nýbakaða brauðið hjá tengdó!).

Fór í ræktina í gær: tók 50 mín brennslu á skíðavél og bretti, 605 kkal fuku. Mér til mikillar gleði þá var þolið ekkert búið að minnka þó ég hafi ekki skrattast í ræktina í 2 vikur. Rosalega var gott að komast aftur, segi ekki annað! Stefni á að fara aftur á morgun.

Nú er öllum skýrsluskrifum lokið (jess!!!) og bara prófin farin að nálgast ískyggilega hratt. Ætla að búa mér til massívt lestrarprógramm sem involverar a.m.k. þrjár ræktarheimsóknir í viku og hollt mataræði.

PS. London var æði, nóg sukkað að sjálfsögðu, bygons… 

04.01.06

Bleh

Skrifað í Daglegt amstur, Mataræði, Vigtin kl. 14:26 af gellan

Jæja, vigtaði mig í gær og stóð í stað, 81,9 is da number. Ég er eiginlega bara fegin að hafa ekki þyngst því ég hreyfði mig ekkert í vikunni (var hálfslöpp, með hálsbólgu og hitalufsu and what have you) og mataræðið var bara svona lala, borðaði alls ekki nógu reglulega og svindlaði þó nokkuð. Síðan voru litlu systkini mín í pössun hjá mér í gær og í dag og það var gert vel við litlu krílin í mat og drykk og náttúrulega sjálfan sig í leiðinni…. vöfflur, domino's pizza, popp, coco pops og ís… úff.

Get eiginlega fátt sagt nema að næsta vika verður pottþétt betri, það ætti varla að vera erfitt! Verð kannski extra ströng alveg fram á föstudaginn því þá fer ég á árshátíð í London, trallala (ef þið væruð búin að gleyma því).

Gellan kveður, full af baráttuanda