05.12.06

Prófin búin og óvæntur glaðningur

Skrifað í Daglegt amstur, Vigtin kl. 15:55 af gellan

Jæja, núna er prófageðveikin yfirstaðin, lítið var staðið við fögur fyrirheit um ræktina og mataræðið var svona lala, lítið um nammi en lifði aðallega á brauði, núðlum og kornflexi…

Ákvað samt sem áður að stíga á vikt í morgun, svona til gamans, og svona líka fín tala blasti við mér: 81,5 kg!

Ætli þetta þyngdartap stafi ekki bara af vöðvarýrnun eða því að ég hafi kannski í öllu stressinu ekki borðað nóg? Allavega hef ég ekkert hreyft mig núna í 3 vikur. En í næstu viku byrjar sumarvinnan og þá kemur maður sér líklega upp einhverri góðri rútínu fyrir virka daga. Hlakka til að byrja að hreyfa mig.

En annars er það bara út að borða og djamm í kvöld með bekkjarfélögunum…