08.29.06
úff
Er búin að vera veik heima núna í tvo daga – vona samt að ég geti skellt mér í vinnuna og jafnvel ræktina á morgun. Ég og mataræðið erum bara ekki að tala saman, ég borða alltof mikið af brauði því það er svo einfalt og fljótlegt. Svo eigum við líka stóran kassa af After Eight hérna heima sem er alltaf að kalla á mig, það blekkir mig svo mikið hvað þetta er þunnt og hvað maður er fljótur að borða þetta: ,,Þetta er ekki neitt neitt, best að fá sér tvö.. eða þrjú…”.
Rölti út í heilsubúð í dag til að kaupa mér te því ég var að drepast í hálsinum, keypti mér í leiðinni healthy límonaði (eða ég laug því að sjálfri mér – það innihélt auðvitað sykur) sem var voða gott á bragðið. Kom síðan við á kaffihúsi við hliðina á búðinni og fékk mér kaffi og GULRÓTARKÖKUSNEIÐ MEÐ RJÓMA, nema hvað. Ætli ég sé ekki eitthvað aum og vorkenni mér yfir að vera lasin með því að troða í mig sykri, virkilega gáfulegt gella, virkilega gáfulegt. Svo var ég kannski líka pínulítið að fagna því að ég fékk 8,5 á prófinu mínu, veivei. Þarf að fara að setja mér einhverjar skýrari reglur í mataræðinu, það er á hreinu.
08.27.06
on the move
Jamm, ég skellti mér í 40 mín. mjög röskan göngutúr í gær og fór í ræktina í dag… svindlaði meira að segja og hljóp MEIRA en ég átti að gera, eða 2,6 km í stað 2,4… var líka að hlaupa á aðeins meiri hraða en síðast, fór uppí 8,5 km/klst. Svo labbaði ég ca. 800 m í viðbót og lyfti svo aðeins efri hluta og finn rækilega fyrir því núna. Var annars að hlusta á diskinn hennar Paris Hilton á meðan ég var í ræktinni… þvílíkt pjúra froðupopp og í rauninni mjög fínt sem slíkt, hún er ekkert að þykjast vera dýpri en hún er og röddin er nú ekkert síðri en t.d. jarmið í Britney Spears. Ég er bara nokkuð sammála þessum dómi um hana. Tek það nú samt fram að ég er ekki mikil svona popp manneskja en þetta er ágætt í ræktina samt sem áður…
Get allavega verið stolt af hreyfingunni því mataræðið hefði getað gengið betur… pizza, 2 bjórar, 1 screwdriver og skot á föstudaginn, kók MEÐ SYKRI og sjeik í gær… já, ég er ekkert voðalega góð í að standast freistingar.
08.25.06
+ 300 g
Jamm, vigtin sagði mér í morgun að ég hefði þyngst um 300 g sem er kannski eðlilegt miðað við sukkið um helgina, fituprósentan virðist allavega hafa lækkað samt. Skammast mín samt ferlega mikið fyrir litla prins pólóið sem ég keypti mér kl. þrjú… hefði svo auðveldlega getað sleppt því en fólkið í vinnunni var að fá sér og ég var eitthvað voða orkulaus þrátt fyrir skyrið sem ég var nýbúin að borða. Svo varð ég bara þung í maganum á eftir og leið alls ekki vel. Er reyndar búin að vera eitthvað voða dauf, þreytt og leið í dag, veit ekki af hverju. Vigtin hafði nú ekki svona mikil áhrif… Er reyndar voða uppgefin eftir langa og erfiða vinnuviku, var að vinna aukavinnu alla dagana.
Jæja, ætla í bíó með vinkonu minni í kvöld, vona að ég hressist við það.
08.24.06
bumbult
Jæja, ég stóð við prógrammið og hljóp mína 2,4 km, hitaði meira að segja upp í 10 mín fyrst á skíðavél. Ég var á æfingu núna milli hálftíu og hálfellefu og hafði borðað kvöldmat kl. sex en var samt ferlega þung á mér og eiginlega bara óglatt og líka með brjóstsviða, líður þannig ennþá… úff, reyni að komast hjá þessu í framtíðinni með því að æfa ekki eftir kvöldmat! Var samt alveg ánægð með hvernig ég stóð mig, hljóp svipað og síðast nema fór aðeins upp í 7,8 km/klst. Rúmlega 300 kkal fuku, jibbí!
Mataræðið var fínt í dag:
MM: 1 skál kornflex með léttmjólk, 1 glas safi
Millimál: 1 lítil skyrdós, sódavatn, 1 bolli grænt te
HM: Tandoori kjúklingalundir m. grænmeti og hrísgrjónum (hollur örbylgjuréttur frá Ömmubakstri), 1 glas safi, 1 lítil kaffijógúrt, 1/2 L sódavatn
Millimál2: 1 banani, 1 bolli kaffi m. mjólk, 1/2 L vatn (stóðst súkkulaðirúsínur sem voru í boði!)
KM: Tælenskur örbylgjukjúklingaréttur (jújú, ég elda alveg stundum!), 1 stór gróf brauðsneið með smurosti, 1 glas safi
Gellan kveður, óglatt og sybbin….
08.23.06
túmat
Bjó til rosa sniðuga tómatsósu áðan til að hafa út á pasta: átti 4 stk sorrí tómata sem hímdu hnípnir inni í ísskáp, maukaði þá með töfrasprota og skellti í pott, kryddaði með einu pressuðu hvítlauksrifi, salt, pipar og oreganó og skar ca. 4 svartar ólífur niður líka og skellti út í. Lét hana svo malla þar til hún var orðin hæfilega þykk og girnileg. Kannski finnst sumum það skrítið en ég hef aldrei eldað svona sósu áður – en mikið ofboðslega var hún góð! Örugglega fín líka með niðursoðnum tómötum en það er vissulega kick að hafa þá svona ferska.
Hvíld í dag skv. prógrammi en fer í ræktina á morgun – er í þessum skrifuðum orðum að búa mér til playlista fyrir ræktina, ekki leiðinlegt það.
08.22.06
dúleg
Fór að hlaupa 2,4 km í dag skv. prógramminu og fór létt með það, hitaði upp með því að skokka á 7 km/klst, skokkaði svo meirihlutann af vegalengdinni á 7,6 km/klst og tók svo síðustu 300 m aftur á 7. Þetta tók mig rétt tæplega 20 mínútur og svo labbaði ég í 3 mínútur til að kæla niður. Er nú reyndar óvön því að taka svona stuttar æfingar, langaði alveg til að skella mér aðeins á skíðavél aukalega en ákvað svo að hlýða prógramminu alveg, svona til að byrja með. Maður vill nú ekki ofgera sér…
Er annars ansi stolt af mér að hafa drifið mig í ræktina, það voru milljón litlar ,,afsakanir” í gangi: ógeðslegt veður úti, bíllinn að verða bensínlaus, ég var þreytt og með hausverk eftir vinnuna, iPodinn að verða batteríslaus (!) o.s.frv. En mín sigraðist á því og er núna bara ansi ánægð með sig
Mataræðið var OK í dag, kannski ekkert 100% hollt en ekkert slæmt. Jæja, farin að plata heittelskaðan til að horfa á eitthvað skemmtilegt með mér…
08.21.06
bland í poka!
Jamm, helgin var nú alveg þokkalega syndum hlaðin enda ætlaði ég svosem alveg að leyfa mér það. Ís og nammi með litlu systur, áfengi í lítravís… en varð nú samt alveg stórhneyksluð á mér áðan, ég skrapp inná vídjóleigu að skila spólu (spólu? afhverju segir maður alltaf spólu þó um sé að ræða dvd disk?) og gerði mér lítið fyrir og keypti mér bland í poka fyrir fimmtíukall!!! Ég, sem kaupi mér venjulega aldrei bland í poka! Langaði bara eitthvað svo mikið í piparbrjóstsykur… en já, þetta sýnir mér að ég verð að taka með mér nesti í vinnuna, eitthvað til að nasla á kl. þrjú því annars verð ég bara hálfringluð af svengd og geri eitthvað kjánalegt
Svo heldur líkaminn alltaf áfram að kalla á sukk eftir svona sukkdaga, maður þyrfti kannski að afeitra sig.
En hlaupaplanið góða byrjar á morgun, samstarfskona mín var einnig að skoða þessa síðu og fann þríþrautarplan sem lítur líka mjög spennandi út, kannski maður prófi það við tækifæri.
Arg, svo veit ég ekkert hvað ég á að hafa í kvöldmatinn, það er svo langt síðan ég og sambýlismaðurinn höfum nennt í Bónus að það er ekkert til í kotinu…
Uppfært: Eldaði þennan fína líka ofnbakaða lax í kvöldmat, með kúskús og sósu úr sýrðum rjóma, sítrónusafa, vorlauk, hunangi, kóríander, salti og pipar. Ansi gott og hollt… en svo var ég að muna að ég fékk mér nokkrar súkkulaðirúsínur í vinnunni OG við sambýlismaðurinn settumst niður áðan og fengum okkur ritzkex með camembert, sultu, villibráðarpaté og 1 hvítvínsglas… ó boj
08.18.06
84,1 og búin í prófi
Jæja, stóð í stað sem ég er nú bara mjög ánægð með því þessi vika er bara búin að fara í lærdóm og stress. Lítið um nammi samt en át slatta af þurrkuðum ávöxtum: apríkósum, fíkjum og eplum. Ef þið eruð hrifin af svona Jacob’s fig rolls þá mæli ég með þurrkuðum fíkjum, alveg sama bragðið en ekkert kex…
Ætla að elda lambalæri í kvöld, hef aldrei gert það áður, wish me luck…
08.14.06
Matardagbók
Jæja, best að smella inn matardagbók svona eins og í gamla daga:
Morgunmatur: 1 skál Cheerios m. léttmjólk, 1 glas safi
Morgunkaffi: 1/2 kíví (var orðið mjúkt og klígjulegt svo ég hafði ekki lyst á að klára það), 1 glas sódavatn, 1 bolli kaffi með mjólk
Hádegismatur: Salatbakki með kjúkling, pasta, grænmeti, 1/2 eggi og salsasósu, 1 sykurskert kókómjólk, sódavatn.
Millimál: 1 ristuð brauðsneið m. smá smjörva, 11% osti og sykurlausri sultu, 1 hrökkbrauð með sama, 1 súkkulaðikex (skamm! var svöng þegar ég kom heim úr vinnunni)
Kvöldmatur: Kjúklingur með mangó chutney sósu (1/3 krukka mangó chutney, tæplega 1 dós 5% sýrður léttur, karrí, 1 hvítlauksrif), baunaspírum (niðursoðnar sem er nú ekkert spes, miklu betri ferskar) og brúnum hrísgrjónum. Vatn.
Er svo búin að ákveða að vera ekkert að stressa mig á ræktinni fram á föstudag, núna hefur lærdómurinn forgang en ætli ég skreppi kannski ekki í smá göngutúra til að hressa upp á þær gráu
08.12.06
Eplakaka með ís…
…svona næstum því. Rosalega gott og hollt:
1 epli, skorið í báta og sett í örbylgjuofn, háan styrk í 3-4 mín. eða þangað til safi er farinn að koma úr bátunum og þeir orðnir nógu mjúkir til að skera þá með skeið. Svo er blandað saman kotasælu (léttkotasæla hentar örugglega vel í þetta, finnst hún skrítin á bragðið ein og sér en hér finnst það varla), kanil og sætuefni eftir smekk, þetta smakkast ansi vel, mætti kannski líkja þessu við kanil-ís… og síðan er eplið snætt með gumsinu útá. Jammí.
Annars er ég komin með eitt nýtt markmið fyrir næsta ár og það er að hlaupa 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu, svona helst á þokkalegum tíma… er alls ekki í góðu formi núna en ætla að byrja á þessu 5 km hlaupaplani. Spurning hvort ég nái að halda mig við það í þessari viku samt, er að fara í próf á föstudaginn og ég reikna með að lesturinn eigi eftir að taka ansi mikinn tíma.
Mér finnst það reyndar ansi góð pæling að einbeita sér helst að íþróttalegum markmiðum, að auka þol og styrk og skrá allar framfarir vel niður… og grenningin fylgi svo bara í kjölfarið ef mataræðið er þokkalegt.