09.24.06

-600 g!

Skrifað í Vigtin kl. 15:56 af gellan

Aftur -600 g svo 82,7 kg var talan á föstudaginn. Annars er síðan með stæla og vill ekki leyfa mér að edita html svo ég get ekki uppfært tikkerinn, ó nei… Hef annars fátt að segja, mikið djamm um helgina, best að reyna að fara að læra og gera eitthvað af viti.

09.20.06

lasin!

Skrifað í Daglegt amstur kl. 23:15 af gellan

Já, ég er enn á ný orðin lasin… einhver leiðinda kvefskítur, háls- og eyrnabólga sem er að stríða mér. Þetta er ekki fyndið – eftir veikindin í sumar þá er ég greinilega voða viðkvæm fyrir öllu kvefi, venjulega varð ég aldrei veik! Það er samt mikið að gera hjá mér þessa vikuna í vinnu og skóla og ég reyni svona að mæta í það allra nauðsynlegasta, treysti mér ekki í ræktina samt. Úff hvað þetta er leiðinlegt.

Mataræðið er lala, er samt að undirbúa matarboð fyrir foreldra mína og tengdó á föstudagskvöldið og ég ætla mér ekkert að vera í 100% hollustunni þá.

Sá mjög skemmtilega tölu á vigtinni í morgun (stalst á hana)… sjáumst á föstudaginn sæta mín!

09.15.06

-600 g!

Skrifað í Vigtin kl. 13:21 af gellan

Já, var heldur betur sæl með töluna sem blasti við mér í morgun, 83,3 kg. Ég er viss um að Toblerone-ið sem ég hef verið að laumast í er að gera gæfumuninn… eða þannig, hehe. Annars finnst mér yfirleitt eins og mér launist fyrir dugnaðinn viku seinna, var t.d. voða dugleg í síðustu viku og held að það sé að skila sér núna. Þá hefnist mér fyrir súkkulaðið í næstu viku, úps…

Eins og áður hefur komið fram hefur vikan verið ansi mikið upp og ofan hjá mér, var ágæt í mataræðinu í gær reyndar og ætla að skella mér í ræktina núna bráðum (þegar nágrannarnir eru hættir að stússast í þvottahúsinu frammi, nenni ekki að rekast á þau því þau halda því fram að við séum að stela þvottaklemmunum þeirra! Meira ruglið…)

Svo er reyndar djamm í kvöld, húrra fyrir því..

09.13.06

stolt

Skrifað í Hreyfing, Mataræði kl. 22:27 af gellan

Vá hvað ég ætlaði ekki að nenna í ræktina áðan – var fáránlega þreytt og með hausverk, að byrja á túr, var ekki komin heim fyrr en hálfsjö eftir klukkutíma strætóferð úr vinnunni, iPodinn batteríslaus… þið skiljið hvað ég er að fara. En ég reif mig bara upp á rasshárunum og fór samt, hljóp 3,2 km og horfði á Simpsons á meðan, ekki leiðinlegt.

Vikan hingað til hefur nú verið upp og ofan, hef ekkert farið í ræktina fyrr en í dag og hef verið að koma seint heim á daginn vegna útréttinga, mikið að gera og frekar óreglulegt mataræði. Svona er þetta bara stundum – og suma daga er súkkulaðið uppi í skáp bara alltof freistandi :/

Er annars að búa mér til tiltölulega hollt túnfisksalat til að taka með í skólann, ef maður er með nóg af hollu nesti þá getur mataræðið varla klikkað ;)

09.11.06

súkkulaði!

Skrifað í Mataræði kl. 21:54 af gellan

Borðaði of mikið yfir helgina – tókst m.a. að missa mig í einhverjum soya-súkkulaðiís á laugardaginn (sem var reyndar nammidagur hjá mér en ég borðaði samt of mikið!) og svo gáfu tengdó okkur fáránlega mikið af súkkulaði þannig að núna eigum við heilu haugana af After-Eight, Toblerone og slóvensku súkkulaði… svo er dagurinn í dag búið að fara í hálfgert rugl, þurfti að stússast heilmikið og hafði lítinn tíma til að borða og sleppti ræktinni, át síðan of mikið í kvöldmatnum. O jæja svona er þetta víst stundum… einhverjar hugmyndir hvað ég á að gera við allt þetta djö*** súkkulaði?

09.08.06

Vasto

Skrifað í Hreyfing, Vigtin kl. 23:14 af gellan

Ágætis dagur í dag, fór í ræktina og hljóp mína 2,8 km eins og þæg lítil stúlka, hljóp alveg dágóðan slatta á 9,5 km hraða sem er bara gaman, maður fær smá auka endorfín kikk. Svo lyfti ég aðeins skv. þessum æfingum, það var ágætt að dusta rykið aðeins af vöðvum efri partsins. Þessi kona er nýja hetjan mín, hún hleypur 5 km á korteri og lyftir 80 kg í bekkpressu! Ansi gott…

Það var vigtun hjá mér í morgun og ég stend s.s. í stað síðan síðast… lít bara á björtu hliðarnar, þá þarf ég ekki að vesenast og breyta tikkernum… Annars var ég búin að sjá ansi skemmtilega tölu á vigtinni tvo morgna í röð þar áður, vona bara að sú tala láti sjá sig á næsta föstudegi!

09.07.06

bananas

Skrifað í Mataræði, Uppskriftir kl. 23:23 af gellan

Átti frekar óhrjálegt bananagrey sem var orðinn aðeins of brúnn og leiðinlegur fyrir venjulega neyslu… í staðinn fyrir að baka venjulegt sykrað bananabrauð úr honum leitaði ég á náðir DDV og fann þessa líka fínu uppskrift að banana-súkkulaðiköku:

1 banani, skorinn í tvennt og bitarnir svo skornir eftir endilöngu

30 g léttmajo

30 g hveiti

1 tsk lyftiduft

2 tsk kakó

fljótandi sætuefni eftir smekk

Tveimur bananabitum er raðað á bökunarpappír. Deigið er hrært saman og síðan skipt í tvennt og hvor hluti flattur aðeins út. Deig er breitt yfir bananabitana, hinir tveir bananabitarnir settir ofan á og hitt deigið breitt þar yfir.

Þetta er síðan bakað í ofni við 200°C í ca. hálftíma. Ég borðaði þetta síðan með smá 10% sýrðum rjóma sem ég hrærði út með 1-2 vanilludropum og sætuefni. Ansi gott barasta!  Uppskriftina fann ég á síðunni sem ég er með í linkum hér til hliðar: DDV opskrifter (undir ,,desserter” og ,,tærter”).
Núna getur fólk auðvitað haldið því fram að kökur á borð við þessa séu ekkert megrunarfæði því ég er ekki að borða skv. DDV að öðru leyti, með þessu er ég kannski að borða meiri fitu og mjólkurvörur en væri leyfilegt á danska o.s.frv… En ég er allavega að nota þetta svo þetta komi í staðinn fyrir venjulegar sykur og fitufylltar kökur og bakkelsi og svo er þetta bara ein sneið í staðinn fyrir að baka heila köku… Auk þess er ég að hreyfa mig frekar mikið sem er nú ekki partur af DDV prógramminu.

Æi þið skiljið hvað ég meina…

Var annars í mat hjá tengdó áðan og varð bara mjög fljótt södd, fékk mér bara einu sinni á diskinn… er farin að venja mig á að borða aðeins minni skammta og það er farið að skila sér, nú þarf ég bara minna til að verða södd :D Fékk mér reyndar rauðvín með matnum, svona er gelluprógrammið sveigjanlegt…

09.06.06

trallala

Skrifað í Hreyfing, Mataræði kl. 21:25 af gellan

Fór í ræktina áðan, átti að hlaupa 2,4 km og var búin að því á 17 mínútum og fannst ekki taka því að hætta þá… svo ég hélt bara áfram og hljóp ca. 3,1 km! Bætti síðan um betur og tók brennslu í 20 mín í viðbót (var að labba á brettinu á 5,6-6 km/klst hraða og í 3 % halla). Svo er mataræðið búið að vera fínt:

MM: 1 skál Cheerios m. léttmjólk, 1 glas safi

Millimál: 1 lítið skyr, 1 kaffibolli, nokkrar baby gulrætur
HM: 1 salatbakki m. kotasælu, pasta og grænmeti, 2 hrökkbrauð með heimatilbúnum hollum hummus, 1/2 L coke light (var rosalega södd lengi á eftir, mjög góður hádegismatur)

Millimál: 1 glas safi (og svo vatn í ræktinni)

KM: 1 tortillaspönnukaka m. nautahakki, grænmeti, osti og sýrðum rjóma, 1 glas safi, 1 lítil lúka salthnetur

Núna er ég alveg voðalega þreytt, södd og sæl… og ætla að njóta þess að vera í fríi í kvöld og læra EKKERT, hehe… búin með dugnaðinn fyrir daginn!

09.04.06

Fínn dagur

Skrifað í Hreyfing, Mataræði kl. 23:30 af gellan

Fór í ræktina fyrir hádegi og hljóp þar 2,8 km og fór létt með. Hljóp töluvert á 8,5 og 9.

Matardagbók:

MM/HM: 1 stórt léttboozt í Laugum

Millimál: 1 lowcarb próteinbar, 1 sykurskert kókómjólk

Millimál 2: 1 hrökkbrauð m. léttsmurosti, 2 skinkusneiðar, 1 lítil lúka hnetur, 1 glas safi

KM: Ýsulasagne, 1 glas safi

Borðaði kannski fulllítið í dag…

09.03.06

- 500 g!

Skrifað í Mataræði, Vigtin kl. 22:22 af gellan

Ég vigtaði mig á föstudaginn og var bara ansi hress með töluna: 83,9 kg sem þýðir – 500 g á einni viku. Annars var ég veik svotil alla vikuna og hreyfði mig því ekkert, kíkti samt í tvö róleg afmæli um helgina og þáði þar veitingar sem voru ekki beint megrunarfæði og drakk smávegis áfengi.

Er búin að ná mér þokkalega af veikindunum og ætla í ræktina á morgun að hlaupa…