09.15.06

-600 g!

Skrifað í Vigtin kl. 13:21 af gellan

Já, var heldur betur sæl með töluna sem blasti við mér í morgun, 83,3 kg. Ég er viss um að Toblerone-ið sem ég hef verið að laumast í er að gera gæfumuninn… eða þannig, hehe. Annars finnst mér yfirleitt eins og mér launist fyrir dugnaðinn viku seinna, var t.d. voða dugleg í síðustu viku og held að það sé að skila sér núna. Þá hefnist mér fyrir súkkulaðið í næstu viku, úps…

Eins og áður hefur komið fram hefur vikan verið ansi mikið upp og ofan hjá mér, var ágæt í mataræðinu í gær reyndar og ætla að skella mér í ræktina núna bráðum (þegar nágrannarnir eru hættir að stússast í þvottahúsinu frammi, nenni ekki að rekast á þau því þau halda því fram að við séum að stela þvottaklemmunum þeirra! Meira ruglið…)

Svo er reyndar djamm í kvöld, húrra fyrir því..

3 Ummæli »

  1. 75kg sagði,

    Til lukku með góðu töluna! :)

  2. Flott hjá þér með góðu töluna, svo er bara að hætta í Tobleroninu þannig að þú fáir áfram góða tölu ;)

  3. sperra sagði,

    Dugnaðarforkur ;) Ég er svona að koma mér í gírinn, fór áðan og keypti mér nesti fyrir skólann og svo er ég víst að byrja á nýju boot camp námskeiði klukkan sjö í fyrramálið !!!


Rita ummæli