09.20.06
lasin!
Já, ég er enn á ný orðin lasin… einhver leiðinda kvefskítur, háls- og eyrnabólga sem er að stríða mér. Þetta er ekki fyndið – eftir veikindin í sumar þá er ég greinilega voða viðkvæm fyrir öllu kvefi, venjulega varð ég aldrei veik! Það er samt mikið að gera hjá mér þessa vikuna í vinnu og skóla og ég reyni svona að mæta í það allra nauðsynlegasta, treysti mér ekki í ræktina samt. Úff hvað þetta er leiðinlegt.
Mataræðið er lala, er samt að undirbúa matarboð fyrir foreldra mína og tengdó á föstudagskvöldið og ég ætla mér ekkert að vera í 100% hollustunni þá.
Sá mjög skemmtilega tölu á vigtinni í morgun (stalst á hana)… sjáumst á föstudaginn sæta mín!
75kg sagði,
föstudagur, 22 september, 2006 kl. 19:28
Æ æ leiðinlegt að vera standa í einhverju svona veikindaveseni!
Vonandi batnar þér sem fyrst!