10.27.06

the great planner!

Skrifað í Hreyfing, Mataræði, Vigtin kl. 17:33 af gellan

Jæja, er búin að setja saman heilmikið plan sem felur í sér lyftingar 3x og brennslu 2x í viku (takk fyrir góða ábendingu disav :) ). Annars ætla ég ekki að setja of mikla pressu á mig, ég VERÐ að fara þrisvar en 5x er fullkomin vika. Auk þess er ég búin að sjá að það eina sem virkar fyrir mig er að plana mataræðið fyrirfram, ég bý til nesti að kvöldi fyrir morgundaginn o.s.frv. Er búin að sjóða saman ágætis mataræðisreglur úr DDV og einu öðru plani.

Svo ætla ég að nýta helgina í að plana lærdóminn svo þetta verði nú allt klappað og klárt fyrir próf, bara 6 vikur þangað til! Svo býst ég alveg við að verða e.t.v. slöpp um helgina, fór nefnilega í inflúensubólusetninguna áðan.

Síðan þarf ég bara að vera dugleg að fylgja þessum plönum mínum, því er nú ver og miður að ég er heimsins besti planari en ekkert voðalega góð að fylgja plönum! Ætla að standa mig!

Matardagbók síðan í gær:

MM: 2 stk Weetabix m. fjörmjólk, 1 glas safi

Millimál: 1 skyrdrykkur

HM: 2 fittybrauðsneiðar m. kotasælu, 2 ólífum og tómatsneiðum (jummí), 1/2 L coke light

KM: ca. 200 g ofnbakaður lax (kryddaður með sítrónusafa, salti, pipar, kóríander og dukkah), ca. 300 g hrátt grænmeti sem ég naslaði yfir sjónvarpinu.

Matardagbók í dag, so far:

MM: 2 Weetabix m. fjörmjólk, 1 glas safi

HM: 2 fittybrauðsneiðar m. léttsmurosti (skinku og beikon) og gúrku

Millimál: 1 stór banani, 1/2 L coke light

Millimál 2: 6 þurrkaðar ferskjur, 6 þurrkaðar döðlur (ótrúlega djúsí og góðar), 1 bolli grænt te

10.24.06

lost

Skrifað í Hreyfing, Mataræði, Pælingar kl. 18:36 af gellan

Já, er svona pínu lost þessa dagana, aðallega vegna óákveðni… var náttúrulega að uppgötva að ég ætla að vera í bikiní á Kúbu eftir ca. 9 vikur og er svona að velta fyrir mér hvað sé best að gera á þessum tíma svo mér líði nú bara þokkalega svona berri. Ég hef náttúrulega verið að hlaupa og æfa þolið en var að spá hvort ég ætti frekar að skipta yfir í meiri og lengri æfingar með brennslu og taka einhverjar lyftingar inn líka til að reyna að tóna skrokkinn eitthvað. Ég veit heldur ekki alveg hvað er best að gera í mataræðinu, á löngum skóladögum (12 tímar í gær, t.d.!) verður voða freistandi að borða bara eitthvað einfalt og óhollt eða bara fullt af brauði…

Ofan á allt saman er ég líka að reyna að vera rosa dugleg í skólanum, allt brjálað að gera og ég ætla að reyna að fá sem flestar tíur í jólaprófunum (eða ok, níur hehe)…

amm, þegar maður er óákveðinn þá hefur maður líka (arfaslaka) afsökun fyrir því að fara ekki í ræktina og borða óskipulagt því maður hefur ekkert plan til að fylgja. Hvað mynduð þið gera í mínum sporum til að verða þokkaleg á 9 vikum? Er með sæmilegt þol, hef ekkert verið að lyfta undanfarið, er 170 cm á hæð, 83 kg og með fituprósentu ca. 32-33%, takk fyrir ;)

Eða á ég kannski bara að sleppa því að einblína á þetta bikiníform og bara halda áfram á hlaupaprógramminu? Ohhh, er eitthvað voðalega óákveðin…

ps. þessir verkir sem ég var að tala um í síðustu færslu hurfu bara svo ég held að þetta hafi ekki verið neitt neitt, sem betur fer :)

10.18.06

arg

Skrifað í Daglegt amstur kl. 20:24 af gellan

Er voðalega tuskuleg þessa dagana… er nefnilega búin að vera með fáránlega verki í neðra kviðarholi síðan á sunnudaginn sem eru tja, ekki beint stingandi sársauki en meira svona stöðug óþægindi sem versna svo aðeins við og við. Fór til læknis áðan en hann vill bara sjá til hvernig þetta þróast næstu daga áður en hann sendir mig í einhverjar rannsóknir svo ég reyni bara að þrauka. Verkjalyf virka ekki og þetta hefur haldið fyrir mér vöku í 2 nætur og ég er voða lystarlaus og má ekki reyna á mig, þannig að ræktin fer fyrir lítið og mataræðið líka (eiginlega bókstaflega, ég hef bara varla lyst á að borða neitt!).

Og ég sem ætlaði að vera svooo dugleg í vikunni, bæði í ræktinni og skólanum (hef varla eirð í mér til að sitja og læra, líður ekki nógu vel til þess). Jæja, ætla bara rétt að vona að þetta sé ekkert alvarlegt…

10.15.06

djamm

Skrifað í Vigtin kl. 14:31 af gellan

Já, vigtin stóð í stað á síðasta föstudag en fituprósentan hefur lækkað úr 33,6 % í 32,4% síðan í september þannig að það er ágætt, svo er ég líka á bullandi túr og finnst ég vera svona frekar útblásin eitthvað, hefur vafalaust sín áhrif!

Fór annars í partý á föstudagskvöldið, ætlaði ekki að drekka mikið en gestgjafinn var einum of duglegur að skenkja í glösin hjá manni… svo var ég bara ónýt af þynnku á laugardaginn, gat ekki gert neitt nema sofið og glápt aðeins á sjónvarpið… frekar slæmt að skemma svona fyrir sjálfum sér, get ekki sagt annað. Kannski ágætis hugmynd að fara bara í bindindi þangað til ég fer að súpa mojito úti á Kúbu yfir jólin…

10.12.06

langur dagur!

Skrifað í Hreyfing, Mataræði kl. 22:49 af gellan

Já hann var frekar langur hjá mér í dag blessaður, var í skólanum frá 10 til 19:30 og skellti mér svo í ræktina, stutt æfing að þessu sinni eða bara 2,4 km (skv. prógrammi, hefði alveg getað hlaupið meira)… síðan var alveg voða gott að koma heim og geta horft á Chappelle’s Show með hreina samvisku, það er sko einn fyndinn blámaður ;)

Matardagbók, svona upp á grínið:

MM: 1 skál Cheerios m. smá múslí líka og léttmjólk

Millim: 1 skyrdrykkur, 1 gróft hrökkbrauð með smurosti, nokkrar þurrkaðar döðlur

HM: 2 gróf hrökkbrauð með hummus, 1 sykurskert kókómjólk, 1 kex

Millim: 1 pakki núðlur, 1/2 L coke light, 1 kex

KM: 1 beygla með kjúklingi, grænmeti og hummus, 1 skyrdós, 1 brauðsneið m. osti, smjörva og sultu

Svo var ég líka frekar dugleg að drekka vatn yfir daginn og drakk náttúrulega slatta af því á æfingu. Ég kalla þetta mataræði nú bara sæmilegt miðað við hvað ég er búin að vera busy í dag… þess má geta að beygluna keypti ég mér í Laugum og borðaði hana eiginlega bara á röltinu að bílnum, ég var svo svöng eftir æfingu! Annars vantar mig sniðugar hugmyndir að nesti eða mat til að borða yfir daginn, vil ekki borða of mikið brauð og fæ svo mikð leið á skyri… það væri snillld að kunna að búa til einhver grænmetisbuff og baunarétti…

10.10.06

jamm

Skrifað í Hreyfing, Mataræði kl. 21:10 af gellan

Fór í ræktina áðan og hljóp 3,6 km sem er það lengsta sem ég hef hlaupið hingað til og mér fannst ég fara nokkuð létt með það, hljóp mest á 7,7-8,5 hraða en fór aðeins upp í 9 líka. Labbaði síðan framhjá hrikalega fitt gellu í íþróttatopp með sixpakk og alles sem var að hlaupa á fullu á 12 km hraða og komin upp í 6 km vegalengd… hehe, svona verður maður kannski einn daginn!

Skrapp síðan í Nóatún og birgði mig upp af skyri og keypti hráefni í hollan fiskrétt sem er að malla núna, vona bara að hann sé góður… semsagt, allt í góðum gír hjá mér.

ps. þið skvísur sem eruð að nota blog.central kerfið: ég lendi oft í vandræðum við að kommenta hjá ykkur, bölvað kerfið heldur því alltaf fram að staðfestingarkóðinn minn sé vitlaus þó hann sé hárréttur… þannig að ekki verða svekktar ef ég er ekki nógu dugleg að kommenta! Svo væruð þið náttúrulega algjörir töffarar ef þið fengjuð ykkur wordpress, ha….

10.07.06

dansi dansi

Skrifað í Hreyfing, Vigtin kl. 18:36 af gellan

Jæja, bara aðeins að láta vita af mér… hlutirnir ganga þokkalega þessa stundina, sé fram á að hafa aðeins meiri tíma fyrir lærdóm og ræktina þar sem ég ákvað að hætta að vinna með skólanum og er bara alveg sátt við þá ákvörðun.

Fór þrisvar í ræktina í síðustu viku, hljóp í tvö skipti (3,2 og 3,4 km) og ákvað að kíkja í danstíma uppi í WorldClass í eitt skiptið! Það var ágætt svosem, hef ekki prófað neina tíma þarna áður og þetta var fínt á meðan það var verið að taka einföld upphitunarspor en svo fóru málin að flækjast þegar kennarinn sagði: ,,Jæja stelpur, nú tökum við rútínuna!” og þá er það einhver súperhröð dansrútína með fullt af flóknum sporum og hristirassahreyfingum (svona eins og gellurnar í Drop it like it’s hot myndbandinu með Snoop Dogg)… ég stóð bara og gapti. Kennarinn lofaði að hún skyldi fara hægar í þetta seinna fyrir þær sem voru nýjar en ég nennti nú eiginlega ekki að bíða eftir því og eftir að hafa eytt 10 mínútum í að reyna að gera eins og hinar þá gafst ég bara upp og fór á skíðavélina… það eru takmörk fyrir því hvað manni getur liðið mikið eins og aula! Fyrir utan það að 95% af stelpunum í þessum tíma voru 16-18 ára og voðalegar dansgellur eitthvað, fannst ég ekki alveg passa inn í hópinn… fór reyndar að líða illa yfir að allir væru að glápa á mig, að ég væri asnaleg og kynni ekkert í þessum dansi og var hálfmiður mín restina af æfingunni. Gat síðan sem betur fer hlegið að þessu daginn eftir :) og finnst ég bara frekar hugrökk að hafa farið alein og prófað eitthvað svona erfitt og nýtt.

Þarf að fara að taka mataræðið aðeins betur í gegn, hef verið að leyfa mér of mikið… enda var vigtin soldið að ybba sig síðasta vigtunardag, hef þyngst um 500 g. Ussususs. Náði samt takmarkinu fyrir 1. október sem var 82,7 kg.
Jæja, smá bloggrúnt áður en ég fer að elda!