10.18.06
arg
Er voðalega tuskuleg þessa dagana… er nefnilega búin að vera með fáránlega verki í neðra kviðarholi síðan á sunnudaginn sem eru tja, ekki beint stingandi sársauki en meira svona stöðug óþægindi sem versna svo aðeins við og við. Fór til læknis áðan en hann vill bara sjá til hvernig þetta þróast næstu daga áður en hann sendir mig í einhverjar rannsóknir svo ég reyni bara að þrauka. Verkjalyf virka ekki og þetta hefur haldið fyrir mér vöku í 2 nætur og ég er voða lystarlaus og má ekki reyna á mig, þannig að ræktin fer fyrir lítið og mataræðið líka (eiginlega bókstaflega, ég hef bara varla lyst á að borða neitt!).
Og ég sem ætlaði að vera svooo dugleg í vikunni, bæði í ræktinni og skólanum (hef varla eirð í mér til að sitja og læra, líður ekki nógu vel til þess). Jæja, ætla bara rétt að vona að þetta sé ekkert alvarlegt…
Sigríður Hjördís sagði,
fimmtudagur, 19 október, 2006 kl. 0:38
úff þetta hjómar ekki vel, vonandi leysist fljótt úr þessu það er ekki gaman að geta ekki fengið almennilegan svefn, knús til þín
75kg sagði,
fimmtudagur, 19 október, 2006 kl. 0:46
Ææ vonandi batnar þér sem fyrst!
elvira sagði,
fimmtudagur, 19 október, 2006 kl. 9:09
Úff ekki gaman að heyra. Vonandi batnar þér nú fljótt. kveðja
gellan sagði,
Sunnudagur, 22 október, 2006 kl. 22:24
Takk kærlega fyrir batakveðjurnar allar saman, verkirnir eru nú sem betur fer næstum alveg horfnir núna svo ég vona að þetta hafi ekki verið neitt merkilegt, bara ansi böggandi…