10.24.06
lost
Já, er svona pínu lost þessa dagana, aðallega vegna óákveðni… var náttúrulega að uppgötva að ég ætla að vera í bikiní á Kúbu eftir ca. 9 vikur og er svona að velta fyrir mér hvað sé best að gera á þessum tíma svo mér líði nú bara þokkalega svona berri. Ég hef náttúrulega verið að hlaupa og æfa þolið en var að spá hvort ég ætti frekar að skipta yfir í meiri og lengri æfingar með brennslu og taka einhverjar lyftingar inn líka til að reyna að tóna skrokkinn eitthvað. Ég veit heldur ekki alveg hvað er best að gera í mataræðinu, á löngum skóladögum (12 tímar í gær, t.d.!) verður voða freistandi að borða bara eitthvað einfalt og óhollt eða bara fullt af brauði…
Ofan á allt saman er ég líka að reyna að vera rosa dugleg í skólanum, allt brjálað að gera og ég ætla að reyna að fá sem flestar tíur í jólaprófunum (eða ok, níur hehe)…
amm, þegar maður er óákveðinn þá hefur maður líka (arfaslaka) afsökun fyrir því að fara ekki í ræktina og borða óskipulagt því maður hefur ekkert plan til að fylgja. Hvað mynduð þið gera í mínum sporum til að verða þokkaleg á 9 vikum? Er með sæmilegt þol, hef ekkert verið að lyfta undanfarið, er 170 cm á hæð, 83 kg og með fituprósentu ca. 32-33%, takk fyrir
Eða á ég kannski bara að sleppa því að einblína á þetta bikiníform og bara halda áfram á hlaupaprógramminu? Ohhh, er eitthvað voðalega óákveðin…
ps. þessir verkir sem ég var að tala um í síðustu færslu hurfu bara svo ég held að þetta hafi ekki verið neitt neitt, sem betur fer
disav sagði,
miðvikudagur, 25 október, 2006 kl. 14:59
ég myndi fara að lyfta. Þegar maður æfir alltaf sama prógramið aftur og aftur t.d. að hlaupa þá aðlagst líkaminn því og fer að halda í fituna á þeim stöðum á líkamanum sem hlaupin ná ekki að örva. Svo er það líka vöðvarnir sem brenna fitu og meiri vöðvar meiri brennsla. Hlaup eru mjög góð fyrir þol og brennslu en þú færð svo miklu meira út úr þeim ef þú lyftir líka Reyndu að lyfta 2-3 í viku og aðra daga að hlaupa, líka er allt í lagi að hlaupa strax eftir lyftingarnar því þá eru vöðvarnir í fullri vinnslu og brennslan í hámarki. Þetta virkar fyrir mig!