10.27.06

the great planner!

Skrifað í Hreyfing, Mataræði, Vigtin kl. 17:33 af gellan

Jæja, er búin að setja saman heilmikið plan sem felur í sér lyftingar 3x og brennslu 2x í viku (takk fyrir góða ábendingu disav :) ). Annars ætla ég ekki að setja of mikla pressu á mig, ég VERÐ að fara þrisvar en 5x er fullkomin vika. Auk þess er ég búin að sjá að það eina sem virkar fyrir mig er að plana mataræðið fyrirfram, ég bý til nesti að kvöldi fyrir morgundaginn o.s.frv. Er búin að sjóða saman ágætis mataræðisreglur úr DDV og einu öðru plani.

Svo ætla ég að nýta helgina í að plana lærdóminn svo þetta verði nú allt klappað og klárt fyrir próf, bara 6 vikur þangað til! Svo býst ég alveg við að verða e.t.v. slöpp um helgina, fór nefnilega í inflúensubólusetninguna áðan.

Síðan þarf ég bara að vera dugleg að fylgja þessum plönum mínum, því er nú ver og miður að ég er heimsins besti planari en ekkert voðalega góð að fylgja plönum! Ætla að standa mig!

Matardagbók síðan í gær:

MM: 2 stk Weetabix m. fjörmjólk, 1 glas safi

Millimál: 1 skyrdrykkur

HM: 2 fittybrauðsneiðar m. kotasælu, 2 ólífum og tómatsneiðum (jummí), 1/2 L coke light

KM: ca. 200 g ofnbakaður lax (kryddaður með sítrónusafa, salti, pipar, kóríander og dukkah), ca. 300 g hrátt grænmeti sem ég naslaði yfir sjónvarpinu.

Matardagbók í dag, so far:

MM: 2 Weetabix m. fjörmjólk, 1 glas safi

HM: 2 fittybrauðsneiðar m. léttsmurosti (skinku og beikon) og gúrku

Millimál: 1 stór banani, 1/2 L coke light

Millimál 2: 6 þurrkaðar ferskjur, 6 þurrkaðar döðlur (ótrúlega djúsí og góðar), 1 bolli grænt te

4 Ummæli »

  1. 75kg sagði,

    Mér líst nú bara vel á þetta plan hjá þér, gangi þér rosalega vel! :)

  2. Fröken UB sagði,

    Hvernig gengur að fylgja planinu?

  3. gellan sagði,

    Heyrðu, það gengur bara frekar vel, takk fyrir að spyrja ;)

  4. disav sagði,

    Frábært hjá þér að byrja. Ég er einmitt í smálægð núna en held að lesa þetta hjá þér sé sparkið sem mig vantar hehe það er oft auðveldara fyrir mig að gefa ráð heldur en að fara eftir þeim sjálf. Gott að ég gat hjálpað! Núna ætla ég að lesa mínar ráðleggingar yfir aftur og komast í gírinn again og fara eftir þeim. Gangi þér vel


Rita ummæli