11.29.06
prófalífið
Jæja, ég rauf langt hreyfingarleysistímabil í dag og skellti mér í ræktina, 40 mín brennsla = 400 kcal + bak- og axlaæfingar og gufa, mmmm… Var semsagt að læra til 3 í nótt, sofnaði kl. 4, vaknaði kl. 12 og var í ræktinni milli 13 og 15, fór síðan að kaupa í matinn og er núna sest niður til að halda áfram með lærdóminn. Frekar skrítið lífsmynstur!
Ætla að reyna að setja skipulagið þannig upp að ég vakni kl. 8 og byrji að læra, fari svo í ræktina milli 13 og 15 a.m.k. annan hvern dag og haldi svo áfram að vera lærilíus. Er aðallega að hugsa hreyfinguna núna til að líða betur, andlega og líkamlega, í prófunum, að líða ekki alveg eins og rassinn sé að vaxa fastur við stólinn! Svo er eiginlega alveg nauðsynlegt (fyrir mig allavega) að taka smá bak- og axlaæfingar svo maður stífni ekki alveg upp húkandi yfir bókunum og gufan er síðan rosa afslappandi. En já, mér finnst langbesti tíminn til að vera í ræktinni vera milli ca. 13-16, þá eru svo fáir…
Sá annars alveg stórfyndna spænska sápuóperu (telenovela) á meðan ég var að brenna: Mi gorda bella (eða Mín feita fallega)… þetta var svo agalega dramatískt og fyndið allt saman að ég trúi varla öðru að þeir séu að gera grín að sápuóperuforminu, pínulítið eins og Bílastæðaverðirnir hjá Fóstbræðrum. Rosa dramatísk tónlist undir öllu sem gerðist og það var ein vond kelling sem var að villa á sér heimildir og þykjast vera önnur manneskja og svo var hún líka að þykjast vera lömuð fyrir neðan mitti og hún hafði myrt mann og annan og haldið framhjá manninum sínum… en einkaspæjarinn hin feita fallega komst að öllu saman! En Oreste, sonur vondu konunnar (sem var líka afsprengi framhjáhalds hennar) er ástfanginn af hinni feitu fallegu og hún er ástfangin af honum en ætlar samt að hlaupast á brott með öðrum manni og ber barn hans undir belti… en svo kom í ljós að hún er bara ekkert feit heldur er í svona fat-suit undir fötunum sínum! Já, alveg stórgaman að þessu… og tilvalið til að æfa spænskuna fyrir Kúbu!

11.17.06
…
Já, Adam var ekki beint lengi í paradís… er búin að lenda í alveg ógurlegu svefnrugli (er ekki að sofna fyrr en 5 á næturnar og ligg síðan bara eins og skata til hádegis) og svo er prófastressið farið að plata mig þannig að mér líður eins og ég hafi ekki tíma fyrir ræktina og að ég megi nú alveg fá mér eitthvað gott að borða til að hressa mig við… Hef mætt samtals tvisvar í ræktina síðustu tvær vikur, obbobobb… Jæja, veit svosem ekkert hvað ég á að segja meira, mig langar til að snúa þessu við en helst af öllu þarf ég að laga svefninn, hann er rótin að öllu ruglinu. Ég vildi óska að ég væri týpan sem gæti rifið mig upp klukkan 7 og farið í ræktina. Þessa dagana get ég ekki einu sinni rifið mig upp kl. 10.
En björtu hliðarnar: mataræðið er ekki hræðilegt, ég hef ekki þyngst og ég sé alveg fram á að komast þrisvar í ræktina í næstu viku.
11.01.06
Tjútjú…
… sagði litla lestin og brunaði áfram á teinum velgengninnar (vá, þetta var svo innilega hallærisleg hugmynd hjá mér að ég varð að láta hana standa, hahaha)
Fór og lyfti neðri parti í gær (er aðeins aumari en ég var orðin en það munar nú ekkert rosalegu, kannski 5 -10 kg í flestum tækjunum), tók svo 60 mín brennslu í dag og lyfti efri parti á morgun. Er svolítið spennt að sjá hvernig það gengur enda er það veiki hlekkurinn hjá mér, finnst miklu erfiðara að lyfta efti parti enda er ég frekar aum í handleggjunum, ömurlega léleg í axlalyftu og léleg í brjóstpressu líka… Þetta verður hressandi. Ég er allavega að standa við planið enn sem komið er og það er gott. (haha, þetta er fáránlega ljótur karl)

Mataræðið gengur líka vel, skipulegg mataræðið að mestu leyti daginn áður og tek með mér gífurlegt magn af hollu nesti í skólann. Þurrkaðar fíkjur og döðlur eru æði. Plómur eru líka æði.

Námið gengur líka vel, kláraði 52 bls. ritsmíð og þrekvirki í dag. Og síðast en ekki síst er ég bara í ljómandi fínu skapi og lítið þreytt þrátt fyrir lítinn svefn síðastliðna nótt. Ætla samt að skríða uppí bælið bráðum með góða bók og njóta þess að þurfa ekki að vakna neitt hrikalega snemma.
Hafið það gott eins og ég, elskurnar!