11.01.06
Tjútjú…
… sagði litla lestin og brunaði áfram á teinum velgengninnar (vá, þetta var svo innilega hallærisleg hugmynd hjá mér að ég varð að láta hana standa, hahaha)
Fór og lyfti neðri parti í gær (er aðeins aumari en ég var orðin en það munar nú ekkert rosalegu, kannski 5 -10 kg í flestum tækjunum), tók svo 60 mín brennslu í dag og lyfti efri parti á morgun. Er svolítið spennt að sjá hvernig það gengur enda er það veiki hlekkurinn hjá mér, finnst miklu erfiðara að lyfta efti parti enda er ég frekar aum í handleggjunum, ömurlega léleg í axlalyftu og léleg í brjóstpressu líka… Þetta verður hressandi. Ég er allavega að standa við planið enn sem komið er og það er gott. (haha, þetta er fáránlega ljótur karl)

Mataræðið gengur líka vel, skipulegg mataræðið að mestu leyti daginn áður og tek með mér gífurlegt magn af hollu nesti í skólann. Þurrkaðar fíkjur og döðlur eru æði. Plómur eru líka æði.

Námið gengur líka vel, kláraði 52 bls. ritsmíð og þrekvirki í dag. Og síðast en ekki síst er ég bara í ljómandi fínu skapi og lítið þreytt þrátt fyrir lítinn svefn síðastliðna nótt. Ætla samt að skríða uppí bælið bráðum með góða bók og njóta þess að þurfa ekki að vakna neitt hrikalega snemma.
Hafið það gott eins og ég, elskurnar!
Fröken UA sagði,
miðvikudagur, 1 nóvember, 2006 kl. 9:19
Já..”lífið er yndislegt”!! þú virðist vera á blússandi siglingu!! gangi þér vel!!:)
75kg sagði,
laugardagur, 4 nóvember, 2006 kl. 0:12
Gaman að sjá hvað þú ert dugleg, gangi þér rosalega vel!
Paid sagði,
Sunnudagur, 5 nóvember, 2006 kl. 16:45
Gott að sjá að þú ert á góðri siglingu
Þá er svo gaman að vera til…
Sigríður Hjördís sagði,
fimmtudagur, 9 nóvember, 2006 kl. 23:20
Gengur greinilega vel hjá þér
Guðrún Ásdís sagði,
fimmtudagur, 9 nóvember, 2006 kl. 23:34
Hæ
þér gengur nú greinilega bara mjög vel! Frábært..
pass með mig!
sjáumst soon!