11.17.06
…
Já, Adam var ekki beint lengi í paradís… er búin að lenda í alveg ógurlegu svefnrugli (er ekki að sofna fyrr en 5 á næturnar og ligg síðan bara eins og skata til hádegis) og svo er prófastressið farið að plata mig þannig að mér líður eins og ég hafi ekki tíma fyrir ræktina og að ég megi nú alveg fá mér eitthvað gott að borða til að hressa mig við… Hef mætt samtals tvisvar í ræktina síðustu tvær vikur, obbobobb… Jæja, veit svosem ekkert hvað ég á að segja meira, mig langar til að snúa þessu við en helst af öllu þarf ég að laga svefninn, hann er rótin að öllu ruglinu. Ég vildi óska að ég væri týpan sem gæti rifið mig upp klukkan 7 og farið í ræktina. Þessa dagana get ég ekki einu sinni rifið mig upp kl. 10.
En björtu hliðarnar: mataræðið er ekki hræðilegt, ég hef ekki þyngst og ég sé alveg fram á að komast þrisvar í ræktina í næstu viku.
Guðný sagði,
laugardagur, 18 nóvember, 2006 kl. 17:05
æ ömurlegt að geta ekki sofið, Biggi lendir líka oft í þessu. ég kannast sem betur fer ekki við þetta, sofna alltaf um leið og ég legst í rúmið. en ég er nú samt ekkert að rífa mig upp klukkan 7 til að fara í ræktina
gangi þér vel í prófunum!
75kg sagði,
mánudagur, 20 nóvember, 2006 kl. 8:34
Æ æ svefninn skiptir einmitt svo ótrúlega miklu máli, gangi þér rosalega vel að komast í gang aftur!
miss UA sagði,
fimmtudagur, 23 nóvember, 2006 kl. 21:45
Það er skelfilegt að ná ekki að sofa.. mar festist í vítahring! Ég er ein af þessu crazy sem ríf mig upp kl. 6 og fer í ræktina. Ég reyni að halda mig við að vakna því ef ég finn mér einu sinni afsökun þá verða þær alltaf fleiri og fleiri og fleiri!!;) legg mig stundum í 15-30 mín eftir vinnu ef ég get. Ég hef alltaf átt erfitt með svefn í gegnum tíðina en það vandamál hverfur eiginlega þegar mar vaknar kl. 6….hehehe…