11.29.06

prófalífið

Skrifað í Daglegt amstur, Hreyfing kl. 16:35 af gellan

Jæja, ég rauf langt hreyfingarleysistímabil í dag og skellti mér í ræktina, 40 mín brennsla = 400 kcal + bak- og axlaæfingar og gufa, mmmm… Var semsagt að læra til 3 í nótt, sofnaði kl. 4, vaknaði kl. 12 og var í ræktinni milli 13 og 15, fór síðan að kaupa í matinn og er núna sest niður til að halda áfram með lærdóminn. Frekar skrítið lífsmynstur!

Ætla að reyna að setja skipulagið þannig upp að ég vakni kl. 8 og byrji að læra, fari svo í ræktina milli 13 og 15 a.m.k. annan hvern dag og haldi svo áfram að vera lærilíus. Er aðallega að hugsa hreyfinguna núna til að líða betur, andlega og líkamlega, í prófunum, að líða ekki alveg eins og rassinn sé að vaxa fastur við stólinn! Svo er eiginlega alveg nauðsynlegt (fyrir mig allavega) að taka smá bak- og axlaæfingar svo maður stífni ekki alveg upp húkandi yfir bókunum og gufan er síðan rosa afslappandi. En já, mér finnst langbesti tíminn til að vera í ræktinni vera milli ca. 13-16, þá eru svo fáir…

Sá annars alveg stórfyndna spænska sápuóperu (telenovela) á meðan ég var að brenna: Mi gorda bella (eða Mín feita fallega)… þetta var svo agalega dramatískt og fyndið allt saman að ég trúi varla öðru að þeir séu að gera grín að sápuóperuforminu, pínulítið eins og Bílastæðaverðirnir hjá Fóstbræðrum. Rosa dramatísk tónlist undir öllu sem gerðist og það var ein vond kelling sem var að villa á sér heimildir og þykjast vera önnur manneskja og svo var hún líka að þykjast vera lömuð fyrir neðan mitti og hún hafði myrt mann og annan og haldið framhjá manninum sínum… en einkaspæjarinn hin feita fallega komst að öllu saman! En Oreste, sonur vondu konunnar (sem var líka afsprengi framhjáhalds hennar) er ástfanginn af hinni feitu fallegu og hún er ástfangin af honum en ætlar samt að hlaupast á brott með öðrum manni og ber barn hans undir belti… en svo kom í ljós að hún er bara ekkert feit heldur er í svona fat-suit undir fötunum sínum! Já, alveg stórgaman að þessu… og tilvalið til að æfa spænskuna fyrir Kúbu!

Mn feita fallega

4 Ummæli »

  1. Paid sagði,

    Flott hjá þér að drífa þig í ræktina, það er svo hressandi að komast aðeins á smá hreyfingu á milli þess sem maður kúrir yfir skólabókunum :)
    Takk fyrir commentið á fyrir/eftir myndirnar. Ég var einhverra hluta vegna hálf nörvis við að setja þær inn, svo það var voða hressandi að fá jákvætt comment ;)

    Gangi þér rosalega vel í prófunum skvísa :)

  2. Sóla sagði,

    Gangi þér vel í prófunum skvísa :) flott hjá þér að ætla að taka þér pásu frá próflestri af og til til að fara í ræktina, verður þá ferskari og hressari þegar þú snýrð aftur í lærdóminn :)

  3. gellan sagði,

    Takk takk báðar tvær!

  4. 75kg sagði,

    Gangi þér vel í prófunum, dugleg að mæta í ræktina lika! :)


Rita ummæli