01.27.07
flöff
Jæja, ég hafði það af að fara þrisvar í ræktina í síðustu viku og var bara nokkuð ánægð með það… en í þessari viku (þ.e.a.s. þeirri sem lýkur á morgun) afrekaði ég það að fara 0 sinnum! Sko mig… reyndar var vikan óhefðbundin að ýmsu leyti, við skötuhjúin neyddumst til að búa hjá tengdó meirihluta vikunnar vegna allsvakalegra framkvæmda á svefnherbergisveggnum okkar og klóaklögnunum þar undir, svaka stuð. Auðvitað léleg afsökun en ég nota gjarnan allar svona raskanir á rútínunni sem afsakanir fyrir því að fara ekki í ræktina, þarf að sjálfsögðu að breyta því.
Memo to self: hysjaðu upp um þig buxurnar kona…
01.19.07
I’m back!
Um að gera að láta aðeins vita af sér… er s.s komin heim frá Kúbu, brún, sælleg og moskítóbitin.
Held ég hafi komið ágætlega undan jólunum, þyngdist um tæplega 1 kg í prófum og Kúbuferð – enda var maturinn á Kúbu ekkert til að hrópa húrra fyrir en kokteilarnir voru freistandi og ísinn líka ![]()
Efast þó ekki um að ég hefði getað þyngst mun meira á venjulegum jólum með öllu sínu konfekti og kökum þannig að ég er bara sátt. Ég er búin að vera ágæt í mataræðinu síðan ég kom heim, hef drukkið mikið af vatni (góða íslenska vatn!) og tek með mér hollt nesti í skólann, svona yfirleitt.
Er búin að fara tvisvar í ræktina í vikunni, fór á þri og fim og tók lyftingar fyrir neðri og efri part og síðan smá brennslu á eftir. Ég er að spá í að miða við að fara þrisvar í ræktina í viku (frekar en að ætla að fara fimm sinnum og fara síðan bara þrisvar) og sjá svo til hvort eitthvað annað henti betur. Annars hef ég það bara ljómandi gott og gleðilegt ár!