01.19.07
I’m back!
Um að gera að láta aðeins vita af sér… er s.s komin heim frá Kúbu, brún, sælleg og moskítóbitin.
Held ég hafi komið ágætlega undan jólunum, þyngdist um tæplega 1 kg í prófum og Kúbuferð – enda var maturinn á Kúbu ekkert til að hrópa húrra fyrir en kokteilarnir voru freistandi og ísinn líka ![]()
Efast þó ekki um að ég hefði getað þyngst mun meira á venjulegum jólum með öllu sínu konfekti og kökum þannig að ég er bara sátt. Ég er búin að vera ágæt í mataræðinu síðan ég kom heim, hef drukkið mikið af vatni (góða íslenska vatn!) og tek með mér hollt nesti í skólann, svona yfirleitt.
Er búin að fara tvisvar í ræktina í vikunni, fór á þri og fim og tók lyftingar fyrir neðri og efri part og síðan smá brennslu á eftir. Ég er að spá í að miða við að fara þrisvar í ræktina í viku (frekar en að ætla að fara fimm sinnum og fara síðan bara þrisvar) og sjá svo til hvort eitthvað annað henti betur. Annars hef ég það bara ljómandi gott og gleðilegt ár!
Sperran sagði,
föstudagur, 19 janúar, 2007 kl. 18:27
Sko okkur skvísurnar, báðar komnar í gang í bloggheimum
elvira sagði,
föstudagur, 26 janúar, 2007 kl. 17:44
Velkomin heim. Hlakka til að lesa meira.
Fröken UB sagði,
þriðjudagur, 30 janúar, 2007 kl. 16:04
Mér finnst vel af sér vikið að bara eitt kíló hafi læðst á þig;) Velkomin aftur í bloggheima.