01.27.07

flöff

Skrifað í Daglegt amstur, Hreyfing kl. 23:47 af gellan

Jæja, ég hafði það af að fara þrisvar í ræktina í síðustu viku og var bara nokkuð ánægð með það… en í þessari viku (þ.e.a.s. þeirri sem lýkur á morgun) afrekaði ég það að fara 0 sinnum! Sko mig… reyndar var vikan óhefðbundin að ýmsu leyti, við skötuhjúin neyddumst til að búa hjá tengdó meirihluta vikunnar vegna allsvakalegra framkvæmda á svefnherbergisveggnum okkar og klóaklögnunum þar undir, svaka stuð. Auðvitað léleg afsökun en ég nota gjarnan allar svona raskanir á rútínunni sem afsakanir fyrir því að fara ekki í ræktina, þarf að sjálfsögðu að breyta því.
Memo to self: hysjaðu upp um þig buxurnar kona…

3 Ummæli »

  1. Sóla sagði,

    Já svona er þetta nú bara stundum :P En þá er bara að taka vel á í nýrri viku :)

    átakskveðjur Sóla

  2. elvira sagði,

    Tekur bara betur á því í næstu viku. Kannast líka við þetta með afsakanirnar

  3. isobel sagði,

    það er ótrúlega erfitt að halda rútínunni í mataræðinu og hreyfingunni þegar öll önnur rútína er útúrkú..

    En ertu nokkuð hætt í blogginu? akkúrat þegar ég er að byrja aftur efir hlé :)


Rita ummæli