03.30.07
Veikindi
Gat nú skeð að um leið og ég var búin að setja upp ágætis ræktarplan (í hausnum allavega) þá næði ég mér í flensu… Er búin að vera frekar mikið lasin síðan á miðvikudaginn (vaknaði kl. 6 um morguninn og hélt að ég væri að deyja, mér var svo illt í hálsinum), er ennþá ansi slöpp en samt skárri en ég var í gær. Dreif mig samt út áðan og fór í eitt stykki próf, sá fram á að það væri ferlegt vesen að missa af því svo ég lét mig hafa það. Birgði mig í leiðinni upp af ávöxtum og léttum mjólkurvörum svo mataræðið haldist aðeins skárra, er annars búin að vera lystarlaus en búin að drekka vatn og te í lítravís. Var síðan gjörsamlega búin á því þegar ég kom heim áðan, fannst ég varla vera ökufær á leiðinni heim úr skólanum!
Fjúff, ætla núna að kúra mig undir sæng og horfa á vídjó…
03.26.07
Mánudagur
Ég ætla nú bara ekki að ræða helgina hér… en ég er þokkalega ánægð með daginn í dag, fyrir utan það að ég var ekki nógu dugleg að læra.
MM: 1 skál Special K m. léttmjólk, 1 glas safi,
Millibiti: 1 banani, vatnsglas (+ fullt af vatni í ræktinni)
HM: Stórt skyrboozt
Millibiti: 2 hrökkbrauð, annað með hummus, hitt með skinku og osti (hvort tveggja fitulítið og ekkert smjör!)
KM: Tælenskur kjúklingaréttur m. hrísgrjónum, innihélt reyndar cashewhnetur sem er nú ekki það fituminnsta, 1 glas safi. Át pínulítið yfir mig.
Fór í ræktina og var í 30 mín á bretti, hljóp þar af í 20 mín á 7,7 – 8,2 km hraða. Hefði getað meira en ákvað að vera róleg á því þar sem ég er að hlaupa til nýja skó. Gluggaði annars í megrunar/lífstílsbók eina í dag og get ekki annað sagt en að það hafi verið ákveðin hvatning, er samt ekki búin að ákveða hvort ég fari eftir henni í einu og öllu eður ei.
03.23.07
Föstudagur
Vigtin sagði 84,9 kg í morgun, o sei sei.
MM: 1 banani og skyrdrykkur.
HM: 1 langlokurist með fajitas kjúkling, 1/2 L coke zero
Millimál: 1 kókómjólk og 2 better choice kex, vatn.
Millimál 2: 1 lítið stykki Green & Black’s súkkulaði
KM: 1/2 Subway m. kjúklingabringu, grænmeti og rauðvínsediki, 2 bollar kaffi (eftir matinn, ekki með honum)…
Lélegt mataræði í dag, er að drepast úr hausverk og dreif mig í göngutúr áðan í grenjandi hagléli… hressandi. Hef ekki drukkið nóg vatn í dag. Síðan er það rauðvín, bjór og gúmmelaði í kvöld… ó mæ!
03.22.07
Fimmtudagur
Var í búðinni áðan og vá hvað mig langaði mikið í súkkulaði! Var svöng og þurfti að beita mig hörðu til að kaupa mér ekki súkkulaðihúðaða kleinuhringi eða Mars eða Rolo egg eða… langaði í þetta allt! En í staðinn keypti ég mér banana og sykurskerta kókómjólk til að nasla á, stolt af því!
Vaknaði á sæmilegum tíma í morgun eða uppúr 9 (snemmt á minn mælikvarða) og tókst að læra dálítið áður en ég fór í skólann. Síðan lítur út fyrir sukk bæði á föstudags- og laugardagskvöld en þetta verður að ég held síðasta djammhelgi fyrir próf svo það hlýtur að sleppa. Eða ekki, en þannig er það nú bara samt!
MM: 1 skál létt ab-mjólk m. sætuefni og múslí, 1 glas eplasafi, 2 bollar kaffi
HM: Beygla m. hummus og vatn
Millimál: banani og sykurskert kókómjólk
KM: verður hnetusteik m. karrísósu og glæsilegt salat með, líklega vatn með til drykkjar.
03.21.07
Miðvikudagur
Ágætis dagur í dag, vaknaði reyndar frekar seint eða um 10 leytið og dreif mig svo í ræktina og tók 30 mín brennslu. Fór svo í skólann og eftir að ég kom heim gat ég ómögulega ákveðið hvort ég ætti að fara að taka til eða læra… svo ég gerði hvorugt og lá í leti. Alveg er ég mögnuð! Annars sýndi vigtin í morgun 84 kg, ég var 85 þegar ég steig á hana morguninn eftir að ég kom heim frá útlöndum svo ég vona að íslenska vatnið og skyrið sé farið að vinna á ítölsku pizzunum og ísnum. Ætla annars að hafa föstudaga vigtunardaga svona eins í gamle dage.
MM: 1 mandarína og stórt skyrboozt, slatti af vatni í ræktinni
HM: 1 croissant m. skinku og 1/2 L coke zero
Millimál: 1 hrökkbrauð með hummus, 2 bollar kaffi, nokkrar salthnetur
KM: 2 tortillapönnukökur m. nautahakki, grænmeti, sýrðum og smá osti, vatn. Ein pönnukaka hefði eiginlega verið nóg, núna er ég pakkpakksödd. Note to self: það er í lagi að henda afgöngum!
03.20.07
Upprisan
Jæja, ég er enn á lífi þó ótrúlegt sé.
Sama hringrásin virðist endurtaka sig aftur og aftur, ég verð bjartsýn á allt og gengur vel í 2-3 vikur, svo kemur eitthvað uppá (veikindi, mikil törn í skólanum, útlandaferðir o.s.frv.) svo ég dett úr gírnum og allt fer á byrjunarreit og ótrúlega erfitt að byrja aftur. Og aldrei næ ég neinum árangri, stend bara í stað eða þyngist smávegis.
Núna er ég nýkomin heim frá Ítalíu þar sem ég naut hins ljúfa lífs… og vigtin stendur í 85 kg. Mér finnst orðið ískyggilega stutt í próf (hvert flaug tíminn á önninni annars?) svo mér finnst ég ekki hafa neinn tíma til að fara í ræktina. Ég veit samt að það er bull því að ég gæti auðveldlega haft tíma ef ég skipulegg mig betur. Ætli planið á þessum tímapunkti sé ekki að smíða lestrarplan og hafa tíma þar inni á frátekinn fyrir ræktina, kannski brennslu ca. þrisvar í viku. Annars er ég frekar ringluð þessa dagana og veit ekki alveg hvert næsta skref á að vera. Er samt sátt við lífið og tilveruna og líður vel, vildi bara að ég væri ekki svona löt og óskipulögð!
Annars hefur dagurinn í dag verið fínn, er mjög stolt af mér að hafa vaknað kl. 7 og mætt í skólann, hef verið ansi ódugleg við það á önninni… og svo hefur mataræðið líka verið þokkalegt:
MM: 1 skál létt-abmjólk m. múslí og sætuefni, 1 glas safi, 1 bolli kaffi m. léttmjólk
MK: 1 skyrdrykkur, 1/2 L vatn
HM: 1 beygla með heimatilbúnum hollustuhummus, 1/2 L vatn, 1 lúka salthnetur
Í kvöldmat verða svo nautahakksburrito (með grænmeti, maís, sýrðum rjóma og mögrum osti, engin gífurleg óhollusta á ferðinni), kannski hugmynd að fá sér einn ávöxt fyrst svo ég borði ekki of mikið.
Gellan kveður, ringluð lítil stúlka með stóra bumbu…