03.20.07
Upprisan
Jæja, ég er enn á lífi þó ótrúlegt sé.
Sama hringrásin virðist endurtaka sig aftur og aftur, ég verð bjartsýn á allt og gengur vel í 2-3 vikur, svo kemur eitthvað uppá (veikindi, mikil törn í skólanum, útlandaferðir o.s.frv.) svo ég dett úr gírnum og allt fer á byrjunarreit og ótrúlega erfitt að byrja aftur. Og aldrei næ ég neinum árangri, stend bara í stað eða þyngist smávegis.
Núna er ég nýkomin heim frá Ítalíu þar sem ég naut hins ljúfa lífs… og vigtin stendur í 85 kg. Mér finnst orðið ískyggilega stutt í próf (hvert flaug tíminn á önninni annars?) svo mér finnst ég ekki hafa neinn tíma til að fara í ræktina. Ég veit samt að það er bull því að ég gæti auðveldlega haft tíma ef ég skipulegg mig betur. Ætli planið á þessum tímapunkti sé ekki að smíða lestrarplan og hafa tíma þar inni á frátekinn fyrir ræktina, kannski brennslu ca. þrisvar í viku. Annars er ég frekar ringluð þessa dagana og veit ekki alveg hvert næsta skref á að vera. Er samt sátt við lífið og tilveruna og líður vel, vildi bara að ég væri ekki svona löt og óskipulögð!
Annars hefur dagurinn í dag verið fínn, er mjög stolt af mér að hafa vaknað kl. 7 og mætt í skólann, hef verið ansi ódugleg við það á önninni… og svo hefur mataræðið líka verið þokkalegt:
MM: 1 skál létt-abmjólk m. múslí og sætuefni, 1 glas safi, 1 bolli kaffi m. léttmjólk
MK: 1 skyrdrykkur, 1/2 L vatn
HM: 1 beygla með heimatilbúnum hollustuhummus, 1/2 L vatn, 1 lúka salthnetur
Í kvöldmat verða svo nautahakksburrito (með grænmeti, maís, sýrðum rjóma og mögrum osti, engin gífurleg óhollusta á ferðinni), kannski hugmynd að fá sér einn ávöxt fyrst svo ég borði ekki of mikið.
Gellan kveður, ringluð lítil stúlka með stóra bumbu…
Sperran sagði,
þriðjudagur, 20 mars, 2007 kl. 22:44
Jei, nú erum við báðar upprisnar !
Nú er bara að standa sig sko og það getum við enda báðar afburða vel gefnar og myndarlegar