03.30.07
Veikindi
Gat nú skeð að um leið og ég var búin að setja upp ágætis ræktarplan (í hausnum allavega) þá næði ég mér í flensu… Er búin að vera frekar mikið lasin síðan á miðvikudaginn (vaknaði kl. 6 um morguninn og hélt að ég væri að deyja, mér var svo illt í hálsinum), er ennþá ansi slöpp en samt skárri en ég var í gær. Dreif mig samt út áðan og fór í eitt stykki próf, sá fram á að það væri ferlegt vesen að missa af því svo ég lét mig hafa það. Birgði mig í leiðinni upp af ávöxtum og léttum mjólkurvörum svo mataræðið haldist aðeins skárra, er annars búin að vera lystarlaus en búin að drekka vatn og te í lítravís. Var síðan gjörsamlega búin á því þegar ég kom heim áðan, fannst ég varla vera ökufær á leiðinni heim úr skólanum!
Fjúff, ætla núna að kúra mig undir sæng og horfa á vídjó…