04.22.07

sunnudagur

Skrifað í Daglegt amstur, Hreyfing kl. 23:40 af gellan

Ræktarkvitt enn á ný: tók stutta æfingu í dag, bara 20 mín á skíðavél (púlaði samt ágætlega) og tók svo axlir, kvið og mjóbak. Teygði svo vel á og fór í gufu.

Fyndið, einhverra hluta vegna virðist ég taka það alvarlegar að fara í ræktina ef ég ákveð að það sé nauðsynlegt fyrir bakið mitt – það virðist hvetja mig frekar áfram heldur en að vera að fara útaf skvapinu! Ég man reyndar ennþá of vel hvað mér var illt í síðustu prófum, ætla ekki að láta það gerast aftur.

Jæja, annars á gellan afmæli á morgun og þó ég neyðist til að læra eitthvað þá ætla ég að njóta þess að borða góðan heimaeldaðan mat um kvöldið (væntanlega humarsúpu, nautakjöt og súkkulaðiköku m. ís í eftirrétt) og dreypa á góðu rauðvíni og hafa það í alla staði huggulegt með mínum kalli. Vei!
Held að öðru leyti ekkert uppá afmælið enda ekki beint stórafmæli á ferð (24) og ég hef engan tíma í þessu prófastressi öllu…

04.19.07

kvitt

Skrifað í Hreyfing kl. 23:08 af gellan

Bara smá ræktarkvitt: skellti mér í dag og tók 45 mín. brennslu, 20 mín á skíðavél og 25 mín. rösklegt labb uppímóti á bretti. Tók síðan kvið- og bakæfingar og góðar góðar teygjur. Var frekar slæm í bakinu síðustu tvo daga en hallast eiginlega að því að það hafi verið harðsperrur frekar en verkur. Er allavega fín núna og vonast til að halda þessu í skefjum ;)

Mataræðið er þokkalegt, það eina sem vantar er að lærdómurinn gangi betur, pirrandi að sitja yfir bókunum heilu og hálfu dagana og rétt svo lúsast áfram… vantar einbeitingu!

04.17.07

prófaskvís

Skrifað í Hreyfing, Mataræði kl. 17:20 af gellan

Jæja, mér tókst að falla rækilega í kökur á föstudaginn, haldið þið ekki að bekkurinn minn hafi verið með kökugerðarkeppni… ég þurfti auðvitað að taka þátt… og smakka síðan afraksturinn hjá hinum! Var síðan að drepast úr hausverk restina af deginum, líkaminn eitthvað að mótmæla þessu sykursjokki eftir þrjá daga í hollum mat. En ég er nú ekkert miður mín enda var þetta danska mataræði meira svona tilraun, og það tilraun sem gekk vel.
Ég þarf alveg pottþétt að vera dugleg að hreyfa mig ef ég ætla ekki að fá heiftarlega í bakið í prófunum, fyrir jólin var mjóbakið algjörlega í hakki og ég er aðeins farin að finna fyrir því núna. Þess vegna ætla ég að fara í ræktina 3-4 sinnum í viku (eða ca. annan hvern dag), taka brennslu/hlaup (er ekki alveg búin að ákveða hvort ég legg áherslu á) og gera svo maga-, bak- og axlaæfingar svo stoðkerfið verði nú hresst :)

Mataræðið: verður innan skynsamlegra marka og kryddað með dönskum blæ en ég sé ekki fram á að geta verið 100 %. Hef ekki alveg tíma í svona svaka vigtanir og skipulag en ég ætla að prófa uppskriftir við og við, ekki síst eftirréttauppskriftir til að koma í stað fyrir sætindi.

Og þannig er nú gelluplanið fyrir vorprófin 2007!

Vigtin stendur annars í 84,0 kg. Ætla ekki að stressa mig of mikið á henni.

Fór í ræktina áðan, tók 20. mín á skíðavél (200 kcal) og hljóp síðan 2,5 km á 7,6-7,8 (rúml. 200 kcal). Tók síðan axla-, kvið- og mjóbaksæfingar og skellti mér aðeins í gufuna. Himneskt alveg. Gerði mér síðan hið frábæra rejesalat III þegar ég kom heim.

Jæja, best að fara að læra eitthvað!

04.12.07

svöng!

Skrifað í Mataræði kl. 15:07 af gellan

Arg, ég er búin að borða fullan danskan morgunmat og hádegismat og ég er svo svöööng! Hráa grænmetið í hádeginu var svo létt í maga eitthvað og svo borðaði ég meira að segja banana um hádegisbilið líka.

Ég á 4/5 af mjólkurskammti eftir og einn ávöxt… dettur helst í hug að saxa niður epli í létt ab-mjólk og vona að það dugi fram að kvöldmat. Mér finnst það einhvern veginn ekki heillandi tilhugsun að hakka í mig masser af gröntsager þegar ég er svona svöng… það er samt eiginlega það eina sem ég má í stöðunni ef ég verð ennþá svöng eftir ab mjólkina. Einhverjar góðar hugmyndir og tips að einhverju ljúffengu og magafyllandi sem má borða? Gæti kannski belgt mig út af tei, hehe…
Þetta er nota bene fyrsti dagurinn þar sem ég vakna á almennilegum tíma, hina dagana hef ég verið að vakna um hádegi, greinilegt að maturinn dugir aðeins skemur til ;) Jæja, best að ímynda sér bara að svengdin sé að éta upp allar ljótu fitufrumurnar…

04.11.07

i dag

Skrifað í Mataræði kl. 23:13 af gellan

Borðaði líka danskt í dag, er með matardagbók á blaði sem ég fylli út svo það er kannski óþarfi að skrifa hana hér en mig langar til að deila með ykkur tveimur frábærum uppskriftum sem ég prófaði í dag á vefnum góða, tjekkið á Rejesalat III undir Frokost (ég kryddaði það með karrí auk salt og pipars) og After Eight Dessert (piparmyntudropar voru reyndar ekki til svo þetta var meira svona súkkulaðidesert með peru, rosa gott).

Síðan sparaði ég allt brauð í dag því ég vissi að kærastinn ætlaði að baka brauð í kvöld sem við vorum að gæða okkur á áðan, jumm. Held ég eigi einn ávöxt og 1/2 L af vatni eftir… en ég get bara ekki meir!

Síðustu tveir dagar hafa eiginlega farið í það að hugsa um mat, plana, kaupa, elda… hef ekki komið nærri því nógu í verk í lærdómnum. Vona að þetta verði aðeins auðveldara með tímanum, var að finna til nesti fyrir morgundaginn áðan og ég er ansi hrædd um að hádegismaturinn minn verði lítið spennandi, skyr, brauð og 300 g af hráum gulrótum, selleríi og sykurbaunum! Það er svona að vera latur og nenna ekki að undirbúa sig betur… vona að allt þetta hráfæði skili sér ekki í ógurlegum vindgangi á morgun, hehehe….

Danskir dagar

Skrifað í Mataræði kl. 0:17 af gellan

Kom sjálfri mér á óvart í dag og borðaði ca. 80 % skv. DDV. Á meðan að ég er svona hrikalega ódugleg við að fara í ræktina verð ég nú að taka mataræðið föstum tökum og á próflestrartímabilinu býst ég við að vera mest heima hjá mér svo það ætti að vera auðvelt að stjórna því hvað ég borða og hvenær :)
Þessi síða er nú hreinlega frábær, manni finnst bara eins og danski verði minnsta mál í heimi þegar maður getur eldað svona margar spennandi uppskriftir.

Var annars andvaka í nótt, svaf heillengi frameftir svo máltíðir dagsins hnikuðust töluvert til. Einnig vil ég benda á að í morgun átti ég bara léttmjólk og smjörva en ekki fjörmjólk og smyrju en síðan fór ég í búð og bætti úr því… but here goes:

MM: 30 g Special K m. léttmjólk, 60 g brauð m. smjörva (ein brauðsneið af brauði sem var mjög þétt í sér, kom mér á óvart hvað það var þungt!), 125 mL safi

HM: Túnfisksalat af síðunni góðu (120 g túnfiskur, 20 g létt majó, smá 10 % sýrður, 1/2 laukur, pipar, salt, sítrónusafi og kapers), 30 g brauð, nokkur salatblöð (gott að setja túnfisksalatið inní og rúlla upp, þetta er of mikið salat til að passa á eina brauðsneið!), 260 g tómatar m. pipar og balsamediki, 250 mL Pepsi Max

KM: Kjúklingur m. bambus og babymaís í sataysósu (afgangur síðan í gær) + hrísgrjón, vigtaði ekki en fékk mér ekki mikið… ca. 300 g tómatar, vatn.

Kvöldkaffi: Jarðarberjasjeik, uppskriftina fann ég á síðunni: 3 dL fjörmjólk, 150 g frosin ber, smakkað til með sætuefni, sítrónusafa og vanilludropum.

Ég drakk 1,5 L af vatni yfir daginn, langar ekki að fara að þamba hálfan líter svona rétt fyrir svefninn. En getur annars DDV frótt fólk svarað mér: Ég skipti tveimur ávöxtum út, annars vegar fyrir brauð og hins vegar grjón, má það? Og hvernig teljast þurrkaðir ávextir?

Vigtin var góð við mig í morgun, sjáum til hvað hún segir á föstudaginn…