04.22.07

sunnudagur

Skrifað í Daglegt amstur, Hreyfing kl. 23:40 af gellan

Ræktarkvitt enn á ný: tók stutta æfingu í dag, bara 20 mín á skíðavél (púlaði samt ágætlega) og tók svo axlir, kvið og mjóbak. Teygði svo vel á og fór í gufu.

Fyndið, einhverra hluta vegna virðist ég taka það alvarlegar að fara í ræktina ef ég ákveð að það sé nauðsynlegt fyrir bakið mitt – það virðist hvetja mig frekar áfram heldur en að vera að fara útaf skvapinu! Ég man reyndar ennþá of vel hvað mér var illt í síðustu prófum, ætla ekki að láta það gerast aftur.

Jæja, annars á gellan afmæli á morgun og þó ég neyðist til að læra eitthvað þá ætla ég að njóta þess að borða góðan heimaeldaðan mat um kvöldið (væntanlega humarsúpu, nautakjöt og súkkulaðiköku m. ís í eftirrétt) og dreypa á góðu rauðvíni og hafa það í alla staði huggulegt með mínum kalli. Vei!
Held að öðru leyti ekkert uppá afmælið enda ekki beint stórafmæli á ferð (24) og ég hef engan tíma í þessu prófastressi öllu…

1 ummæli »

  1. Ásta sagði,

    Rosa ertu dugleg í ræktinni – en þekki þetta með að æfa baksins vegna, ótrúlegt hvað réttar æfingar geta gert fyrir mann.

    Til hamingju með daginn! Vonandi áttu yndislegan dag :)


Rita ummæli