05.31.07
pirr!
Eða svona… ekkert stórkostlegt pirr samt. Tókst að klúðra æfingunni minni á þriðjudaginn, ákvað að fara eftir vinnu og var svo svöng og orkulaus kl. 18 að ég gleypti í mig eina litla drykkjarjógúrt… og gat síðan nákvæmlega ekkert hlaupið, fékk bara dúndrandi hlaupasting. Tók þess vegna bara rösklegt labb í staðinn og kláraði vegalengdina 3,2 km skv. planinu og lyfti síðan aðeins. Ég gerði allavega það besta úr stöðunni
Greinilegt að ég þoli bara engan mat rétt fyrir hlaupaæfingu.
Hefði átt að fara í ræktina í dag en það er víst grill beint eftir vinnu og ég ætlaði aldrei að geta sofnað í nótt svo ég fór ekki í morgun. Fer sko pottþétt á morgun í staðinn, það kemur ekkert annað til greina!
Ég fer venjulega heim í hádeginu í vinnunni og bý mér oft til skyrboozt, fljótlegt, hollt, gott og svalandi í öllum þessum sumarhita (!), verst að það eru ansi oft kökur og sætabrauð í boði í vinnunni, hef ekki verið nógu dugleg að forðast það…
05.27.07
hlaup
2,8 km hlaupnir í dag, á 7,5-8,3 hraða og smá sprettur (síðustu 300 metrarnir ca.) á 9,3. Fékk smávegis endorfín kikk, það var nú skemmtilegt. Á brettinu við hliðina á mér var skrítinn karl sem tuldraði endalaust við sjálfan sig, hóstaði mikið og reglulega gaus upp prumpufýla frá honum. Ojjjjj….
Síðan átti ég bara næs dag í sólinni, fór í ísbíltúr með heittelskuðum og fórum síðan út að borða á Shalimar. Er ennþá að venjast því hvað það er indælt að þurfa ekki að læra alla daga
05.24.07
Ræktarkvitt
Nýtti mér klukkutíma matarhléið í hádeginu og fór í ræktina, hljóp 2,4 km (skv. planinu off kors) og hljóp á hraðanum 7,5-9. Það var ansi tæpt að koma sér í ræktina, hlaupa, teygja á, sturta sig, kaupa sér skyrboozt og koma sér aftur í vinnuna á klukkutíma – en það tókst. Er reyndar að vinna rétt hjá ræktinni svo það er algjör snilld. Sé samt að hádegið mun ekki virka sem ræktartími þegar ég fer að lengja vegalengdirnar. Fleira var það ekki í dag
05.22.07
10 km, ekki 10 kg!
Jæja, prófin að baki og vinnan tekin við. Planið í sumar er að komast í gott hlaupaform og stefna að íþróttalegum markmiðum frekar en vigtarlegum, það er svo miklu skemmtilegra og kemur á óvart hvað maður bætir sig fljótt. Stefnan er s.s. tekin á þáttöku í 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu og ég er búin að setja upp hið fínasta hlaupaplan… nú er bara að ná að fylgja því!
Fór s.s. í ræktina í morgun fyrir vinnu og hljóp 2,8 km og hélt mig á hraðanum 7 – 8. Ágætis sviti svona í morgunsárið. Síðan stóð ég í fæturna í 9 tíma í vinnunni auk þess að labba í ræktina, vinnuna, heim í mat, aftur í vinnuna og svo aftur heim… samtals 40 mínútur af labbi sem ég mun fá aukalega á dag í sumar ef ég fer alltaf heim í hádeginu, ágætis brennslubónus svosem
Og já, ég er rosalega þreytt í fótunum núna, vona að ég verði búin að jafna mig á morgun.
Á eftir að plana mataræðið betur en finnst ekki ólíklegt að ég láti það summerast upp í ,,allt er gott í hófi” en reyni að sleppa sælgæti samt. Eldaði frábæran tælenskan kjúklingarétt áðan, hverjum er ekki sama þó kókosmjólk sé ekki það fituminnsta í heimi, mmmmm…
05.07.07
pottur
Hef lítið farið í ræktina síðustu daga en skellti mér loksins í dag og það var svo frábært að það var hreinlega eins og fínasta dekur. Dagurinn minn var s.s. svona:
Svaf í 2 tíma um nóttina því það tók aðeins lengri tíma að lesa en ég bjóst við
Fór í próf milli 9 og 12, gekk vel og skrifaði af mér báða handleggina
Fór heim, fékk mér að borða og hvíldi mig aðeins… og stóð frammi fyrir tveimur valkostum: að leggja mig… eða fara í ræktina! Það var smá sól úti svo ég lét það virka sem hvatningu að kíkja aðeins í sund í leiðinni. Ég dreif mig semsagt, 20 mín púl, bak-, rass-, maga- og axlaæfingar og góðar teygjur. Skellti mér svo í heitan pott og smá sólbað, það var ekkert smá frábært. Fór svo aðeins í gufuna líka. Eftir þessa ferð leið mér svo vel, það er ágætis tilbreyting að nota líkamann sinn aðeins í staðinn fyrir að sitja bara og æfa heilafrumurnar. Ég var meira að segja í svo miklu stuði þegar ég kom heim að ég fór að þrífa! Annað eins hefur ekki gerst í prófatíð hjá mér svo ég muni eftir…
Annars fór ég í nudd á föstudaginn, ekkert smá þægilegt. Ein rót að bakverkjunum gætu verið of stífir rassvöðvar… allavega þrýsti nuddarinn á einhverja punkta þar, frekar vont en svo þegar hún sleppti fann ég þvílíkan straum og létti upp í bak og niður í fætur, frekar magnað. Þess vegna hef ég bætt rassæfingum með í ræktarplanið
Fer aftur í nudd á fimmtudaginn, næs.
Er aftur byrjuð að velta þeim möguleika fyrir mér að stefna á 10 km hlaup í Reykjavíkurmaraþoninu, það er nefnilega soldið sniðugt að hafa þannig markmið til að stefna að. Annars er ég bara orðin ansi þreytt núna, fékk mér 1 bjór áðan og horfði á Grey’s anatomy – þetta er mesta partýstemmningin þessa dagana. Bara 8 dagar eftir!
05.04.07
próf
Jæja, ég var ágætlega dugleg að fara í ræktina annan hvern dag og núna síðustu daga hefur bakið verið fínt… sem þýðir að ég svíkst frekar undan að fara! Var reyndar í erfiðasta prófinu í dag þannig að stressið hefur verið töluvert síðustu daga og þá gef ég mér síður tíma til ræktarferða. Vonandi verð ég aðeins duglegri það sem eftir er af prófatímabilinu – bara 12 dagar eftir!
Mataræðið er upp og ofan en vigtin helst stöðug, held ég geti varla beðið um meira