06.13.07

hlaup

Skrifað í Hreyfing kl. 18:43 af gellan

Skellti mér út að hlaupa í gær í góða veðrinu, hljóp ca. 3 km skv. Gmap (veljið bara að skoða Ísland í satellite og zoomið svo inn á Reykjavík þar til hægt er að sjá götur og hús, rosa sniðugt). Annars hafa hlaupin ekki gengið nógu vel vegna leiðindaverks sem ég fæ oft framan á sköflunginn þegar ég byrja að hlaupa (beinhimnubólga?), gæti verið því ég fór of geyst af stað í upphafi. Jæja, mér tókst þó allavega að hlaupa þessa vegalengd í gær þrautalaust. Og svo labba ég alltaf í 40 mínútur á dag, í vinnuna og heim í hádeginu… gæti útskýrt það að ég er búin að léttast dálítið þrátt fyrir að mataræðið sé ekkert frábært.

Vona bara að þessi fótaverkur sé úr sögunni og að mér takist að halda mér þokkalega við hlaupaplanið.