10.31.07
étiét
Jæja, matarmálin voru bara í rugli í dag… var semsagt í krefjandi verklegum tíma í morgun frá 8:20-13:30 án þess að geta tekið pásu til að borða. Skyrið sem ég tók með mér dugaði skammt, hámaði það í mig kl. hálftvö og varð síðan bara að fá meiri orku svo ég myndi ekki lyppast niður. Stökk á það næsta sem ég sá í sjoppunni, það reyndist vera roastbeef samloka… ojjj. Finnst roastbeef ekki einu sinni gott!
Fékk síðan gríðarlega nammiþörf seinnipartinn og fékk mér kókómjólk (sykraða, skamm!) og síðan tvö hrökkbrauð með hummus (plús í kladdann fyrir það). Þurfti síðan að vera uppi í skóla frá 18:30-22 útaf fjáröflunarkvöldi sem bekkurinn minn var með, var ekki búin að borða kvöldmat en við vorum að selja pizzur á staðnum… þar át ég 3 feitar sneiðar með pepperoni. Og einn lítinn þrist. Og er núna að fá mér hvítvínsglas til að ná mér niður eftir daginn.
Semsagt, miklar annir, lélegt skipulag og sjálfsstjórn sem er í fríi = horror!
En á skemmtilegri nótum þá fór ég í ræktina í gærkvöldi og brenndi 600 kcal í hörkupúli, eiginlega þol frekar en brennsla (var líka svo seint á ferðinni að ég þurfti að herða á mér til að ná að brenna þessum kalóríufjölda fyrir lokun!) Ætla líka að fara á morgun og tvisvar um helgina til að uppfylla kvótann.
Og nú þarf ég að fara að koma mér í bælið, aftur verklegt kl. 8 í fyrramálið… og ef eitthvað er verður það enn meira krefjandi og leiðinlegt en það sem ég var í í dag
Gellan, námsmaður sem á gífurlega bágt
10.30.07
dans
Jæja, mér tókst að fara einu sinni í ræktina í síðustu viku og einu sinni í dans… ekki sérlega glæsilegur árangur. Sat svo á rassinum mest alla helgina að gera ritgerð. Mataræðið hefur ekki verið neitt hræðilegt en ekkert frábært heldur.
Var að reikna út að ég þyrfti í rauninni bara að léttast um 400 g á viku til að ná 69 kg fyrir útskriftarferð, það er nú hið besta mál bara. Er að spá í að fara að venja mig á að fara í ræktina á kvöldin frekar en á morgnana, hef til þess nokkrar ástæður:
- mér finnst langbest að fara þegar það eru fáir, þoli ekki að lenda í troðningi…
- ég á erfitt með að vakna snemma á morgnana, finnst nógu erfitt að mæta í skólann kl. 8:20
- mér finnst ofsa gott að slaka smá á í gufunni eftir ræktina, það er mjög notalegt fyrir svefninn og maður hefur tíma til þess á kvöldin frekar en á morgnana
- er hvort sem er orðin of þreytt á kvöldin til að læra eitthvað af viti, skárra að hreyfa sig en að hanga bara á netinu eða glápa á imbann eins og kvöldin vilja stundum verða
Helsti ókosturinn er varðandi kvöldmat, ég get bara helst ekki hreyft mig ef ég er búin að borða eitthvað og þyrfti þá að borða kvöldmat seint en þar sem ég og kærastinn erum bara tvö í heimili þá getum við nú alveg verið sveigjanleg, notið þess frekar að elda og borða saman um helgar eða eitthvað.
Var annars að koma úr dansinum núna, það var hressandi eins og vanalega þó maður sé oft á mörkum þess að nenna vegna almennrar leti og þreytu… gengur ekki að láta eftir sér að skrópa!
Hérna er annars geggjað lag fyrir ræktina (og þvílíkt flottar gellur í myndbandinu, maður getur notað það sem hvatningu að vilja verða eins og þær
)
10.26.07
matardagbók aftur
MM: 1 skál Cheerios m. léttmjólk, 1 glas blandaður ávaxtasafi
Á milli mála: vatn
HM: Samloka með kjúklingaáleggi, kotasælu og pipar, 1 skyr.is dagmál
Grænt te, 1/2 L vatn
Kl 16: 1 flatkaka með smyrju og 1 sneið létthangiáleggi, epli, banani og appelsína skorið niður í skál með kókosmjöli, kanil og smá 10% sýrðum rjóma, 2 piparbrjóstsykurmolar (!)
Kl. 21-23: Drakk rúmlega 1/2 L af vatni í ræktinni
Kl. 23:30: 1 polarbrauð með möndlukjúkling (tilbúin samloka, mjög góð), 1 sykurskert kókómjólk, 1/2 örbylgjupopppoki (hefði átt að sleppa því).
Er ánægð með daginn, hefði mátt drekka meira vatn og sleppa poppi og brjóstsykri. En fór í ræktina og tók vel á því, brenndi samtals 600 kcal á skíðavél og hlaupabretti, hljóp meira að segja aðeins. Fór síðan í gufu, alveg frábært.
Er núna að leka niður af notalegri þreytu, bæði í líkama og haus, best að koma sér í bælið…
10.24.07
matardagbók
Jæja, er í stuði til að henda inn matardagbók:
MM: 1 lítil skál Cheerios m. léttmjólk, kaffi m. smá léttmjólk
(drakk 1/2 L sítrónutopp hér á milli)
HM: 1 pakki núðlur (aromatic thai frá blue dragon, bragðgott en engin sérstök hollusta) , 1 hrökkbrauð með kotasælu og svörtum pipar
Millimál: 1 skyrdrykkur (bláberja frá .is), 1 flatkaka með smá Smyrju og 3 sneiðum létthangiálegg, 1 glas safi
Planið er svo að hafa svínakótilettu í kvöldmatinn, með sveppasósu (með haug af ferskum sveppum skornum í) og stórt og fínt salat (sniðugur svona salatbakki sem heitir Árstíðarsalat, salat + paprika og gulrætur, líka íslenskt en ekki eitthvað bölvað hollenskt fýlukál), hendi líklega smá fetaosti útí (ekki úr olíu).
Ætla síðan í ræktina í kvöld, hef ekki verið dugleg við það vegna veikinda og anna… sé reyndar ekkert fyrir endann á verkefnabunkanum mínum en ég ætla að gefa mér tíma í þetta, ég VERÐ.
Bjó annars til rosa gott ávaxtasalat í gær: skar niður epli og appelsínu í skál og setti smá kókosmjöl og kanil út á. Furðu gott.
Farin að læra..
10.19.07
vigtin
Jæja, ég lofaði víst tölum og 80,2 kg blasti við á vigtinni í morgun. Það þýðir að ég hef lézt um ca. 1 kg á tveimur vikum með því einu að taka með mér aðeins hollara nesti, skyr, banana o.þ.h. í skólann.
Annars hef ég verið hálflasin síðan ég póstaði hérna síðast og er enn ansi kvefuð. Er líka búin að borða kökur tvo daga í röð (fjáröflunar köku- og kaffisala uppi í skóla, einum of freistandi þegar maður er svangur og þreyttur) og var að enda við að borða dýrindis pastarétt og drekka hvítvín með! Á morgun er svo árshátíð hjá kærastanum, humar, nautalund, rauðvín… Jæja, tek bara betur á því í hreyfingunni í næstu viku, nenni ekki að stressa mig á þessu akkúrat núna enda í ljómandi skapi (og reyndar búin að vera í allan dag, skemmtilegur dagur).
Góða helgi allar saman!
10.16.07
BMI
Var að rekast á alveg stórskemmtilegt project á netinu: myndskreyttur BMI skali (flott að skoða hann í slide show með kommentum).. sýnir nú bara hvað maður á að fara varlega í að treysta svona mælingum því að BMI gerir ekkert ráð fyrir mismunandi líkamstýpum eða vöðvum. Þarna sér maður grannt og hraustlegt fólk sem er talið vera ,,obese”, glæsilegar konur sem eru ,,morbidly obese” o.s.frv…
Gaman að þessu.
reikningur
Jæja, gellan lagðist í smá reikning eins og hennar er von og vísa…
1 kg af fituvef í mönnum inniheldur u.þ.b. 870 g af hreinni fitu (lípíðum).
Hvert gramm af fitu inniheldur 9 kílókalóríur = 7830 kcal fyrir 1 kg af fituvef.
Ef planið væri að léttast um 500 g af fituvef á viku bara með hreyfingunni einni saman þyrfti ég að brenna aukalega 3915 kcal á viku.
Það er spurning hvort ég fari að miða brennsluna í ræktinni við þetta…
Dans, 75 mín í viku: ca. 400 kcal (svona að meðaltali)
Í hvert sinn sem ég labba í ræktina: 20 mín labb samtals = 116 kcal
Þannig að ef ég fer í dansinn og auk þess ræktina 4x í viku: 3915 – 400 – 4 x 116 = 3051 kcal
3051 kcal deilast niður á fjögur skipti = 763 kcal í hvert sinn. Það hljómar nú bara ekkert svo óyfirstíganlegt
Æi, stærðfræði gerir allt svo einfalt og augljóst! Erfiðara er svo að fylgja þessu eftir… og þá verð ég líka að passa að halda mataræðinu stöðugu, hafa það eins og það er núna, hvorki meira né minna.
Annars fór ég á kaffihús í dag og fékk mér steikarsamloku… hljómar eins og svaka sukk en ég gerði sem minnst úr skaðanum með því að a) borða bara neðra brauðið (tók hitt til hliðar, nenni ekki að vera að fitna af einhverju óspennandi brauði, geri þetta líka með hamborgara), b) snerta varla franskarnar sem komu með (hefði átt að fatta að biðja bara um meira salat í staðinn) og c) skafa sem mest af sósunni af, það var alveg gott bragð af kjötinu án hennar. Svo borðaði ég grænmetið sem fylgdi með af bestu lyst og drakk vatn með. Þarna hef ég sparað alveg þónokkrar kalóríur myndi ég halda… en fannst ég samt vera að ,,dekra” við mig.
Sá mjög skemmtilega tölu á vigtinni í morgun en ætla að sitja á mér að setja neitt inn fyrr en á föstudaginn…
10.14.07
törn
Jæja, núna er langri og leiðinlegri verkefnatörn lokið í bili (svona nokkurn veginn) svo ég hef smá tíma til að setjast niður og reyna að koma hugsunum mínum í blogg.
Planið er að geta verið í bikiní án þess að liða illa í útskriftarferðinni minni um miðjan maí. Það eru 6 mánuðir þangað til og ég reikna með að 69-70 kg væri ágætis þyngd fyrir mig. Er í kringum 81 kg núna svo við erum að tala um 12 kg á 6 mánuðum eða 500 g á viku. Hvernig ætla ég að fara að því? Þar er ég reyndar ekki alveg viss, ætlaði að nota helgina í að setja upp voða fínt plan en komst einhvern veginn ekki í það vegna…. hmmm, leti.
Gróft plan: skipuleggja 2-3 ræktarheimsóknir í viku, auk danstímanna. Legg áherslu á brennslu núna fyrst um sinn, lágmark 45 mín. Þarf nauðsynlega að ákveða fyrirfram hvenær ég ætla að fara og standa við það, annars þykist ég aldrei hafa tíma. Ætla að leggjast yfir dagbókina mína á eftir.
Mataræði: taka með mér hollt nesti í skólann, skyr, ávexti, gróft brauð með hollu áleggi. Drekka mikið vatn og minnka diet gos. Drekka grænt te í stað kaffis með mjólk. Passa skammtastærðir, hætta að borða áður en ég verð södd (sérstaklega í kvöldmatnum). Ekkert nammi (borða reyndar ekki mikið nammi en ætla að hætta því alveg.) Prófa spennandi DDV uppskriftir.
Einhverjar athugasemdir eða hugmyndir? Wish me luck….
Planið er líka að skella inn “fyrir” myndum við tækifæri, það verður nú skemmtilegt, ekki síst þegar hægt verður að smella inn flottum “eftir” myndum og dást að muninum. Ætla svo að hafa föstudaga sem vigtunardaga…
10.03.07
haust
Jæja, skemmst frá því að segja þá losnaði ég ekki við bévaðan fótaverkinn og hætti því að hlaupa og fór að stunda stigvélina í staðinn, fór alveg annan hvern dag í heilar tvær vikur… og svo einhvern veginn lognaðist dugnaðurinn út af. Þurfti reyndar að skrifa ritgerð í sumar og 9 tíma vinnudagur + ritgerðarskrif gáfu mér ekki mikinn tíma fyrir hreyfingu. Léleg afsökun, ég veit…
Er núna byrjuð á fullu aftur í skólanum, hef aldrei upplifað jafn mikið álag og núna, endalaus skilaverkefni, skýrslur, fyrirlestrar og 15 bls ritgerðir (3 stk.) + verklegir tímar og fyrirlestrar… já, afsakanirnar hlaðast bara upp, þetta er ferlegt!
Ég er á dansnámskeiði einu sinni í viku með ektamanninum og fæ þannig 75 mínútna ágætis brennslu og jafnvel þol, maður nær alveg að svitna… og síðan ætla ég að troða inn 2-3 ræktarheimsóknum í viku oná þetta.
Fór í búð í dag og birgði heimilið upp af hollum mat, lax er að bakast í ofninum og ég á stefnumót við skíðavél og Tyru Banks í kvöld uppí í World Class og gufuna þar á eftir, mmmm.
Framtíðin er björt… eða það ætla ég rétt að vona.