10.03.07
haust
Jæja, skemmst frá því að segja þá losnaði ég ekki við bévaðan fótaverkinn og hætti því að hlaupa og fór að stunda stigvélina í staðinn, fór alveg annan hvern dag í heilar tvær vikur… og svo einhvern veginn lognaðist dugnaðurinn út af. Þurfti reyndar að skrifa ritgerð í sumar og 9 tíma vinnudagur + ritgerðarskrif gáfu mér ekki mikinn tíma fyrir hreyfingu. Léleg afsökun, ég veit…
Er núna byrjuð á fullu aftur í skólanum, hef aldrei upplifað jafn mikið álag og núna, endalaus skilaverkefni, skýrslur, fyrirlestrar og 15 bls ritgerðir (3 stk.) + verklegir tímar og fyrirlestrar… já, afsakanirnar hlaðast bara upp, þetta er ferlegt!
Ég er á dansnámskeiði einu sinni í viku með ektamanninum og fæ þannig 75 mínútna ágætis brennslu og jafnvel þol, maður nær alveg að svitna… og síðan ætla ég að troða inn 2-3 ræktarheimsóknum í viku oná þetta.
Fór í búð í dag og birgði heimilið upp af hollum mat, lax er að bakast í ofninum og ég á stefnumót við skíðavél og Tyru Banks í kvöld uppí í World Class og gufuna þar á eftir, mmmm.
Framtíðin er björt… eða það ætla ég rétt að vona.
verdandifit sagði,
miðvikudagur, 3 október, 2007 kl. 22:46
Hæhæ! Takk æðislega fyrir kommentið á síðuna mína! Ætla að linka á þig og fylgjast með þér tæta af þér kílóin!
Ég er einmitt í Laugum líka og það er snilld að láta sjónvarpsdagskrána ráða för, fór einmitt í hádeginu gagngert til að horfa á Miss congeneality! hehe.
75kg sagði,
fimmtudagur, 4 október, 2007 kl. 7:54
gott hjá þér að vera byrjuð aftur, gangi þér rosalega vel!
Þuríður sagði,
fimmtudagur, 4 október, 2007 kl. 22:10
Til hamingju með að hafa byrjað aftur! Gangi þér súper vel!