10.31.07
étiét
Jæja, matarmálin voru bara í rugli í dag… var semsagt í krefjandi verklegum tíma í morgun frá 8:20-13:30 án þess að geta tekið pásu til að borða. Skyrið sem ég tók með mér dugaði skammt, hámaði það í mig kl. hálftvö og varð síðan bara að fá meiri orku svo ég myndi ekki lyppast niður. Stökk á það næsta sem ég sá í sjoppunni, það reyndist vera roastbeef samloka… ojjj. Finnst roastbeef ekki einu sinni gott!
Fékk síðan gríðarlega nammiþörf seinnipartinn og fékk mér kókómjólk (sykraða, skamm!) og síðan tvö hrökkbrauð með hummus (plús í kladdann fyrir það). Þurfti síðan að vera uppi í skóla frá 18:30-22 útaf fjáröflunarkvöldi sem bekkurinn minn var með, var ekki búin að borða kvöldmat en við vorum að selja pizzur á staðnum… þar át ég 3 feitar sneiðar með pepperoni. Og einn lítinn þrist. Og er núna að fá mér hvítvínsglas til að ná mér niður eftir daginn.
Semsagt, miklar annir, lélegt skipulag og sjálfsstjórn sem er í fríi = horror!
En á skemmtilegri nótum þá fór ég í ræktina í gærkvöldi og brenndi 600 kcal í hörkupúli, eiginlega þol frekar en brennsla (var líka svo seint á ferðinni að ég þurfti að herða á mér til að ná að brenna þessum kalóríufjölda fyrir lokun!) Ætla líka að fara á morgun og tvisvar um helgina til að uppfylla kvótann.
Og nú þarf ég að fara að koma mér í bælið, aftur verklegt kl. 8 í fyrramálið… og ef eitthvað er verður það enn meira krefjandi og leiðinlegt en það sem ég var í í dag
Gellan, námsmaður sem á gífurlega bágt
Heiða sagði,
Sunnudagur, 4 nóvember, 2007 kl. 23:44
Úffpúff… strembinn dagur. Ég þekki þetta með að verða uppiskroppa með matinn í skólanum… og þessi sjoppa er ekki að gera sig.
Ásta sagði,
mánudagur, 5 nóvember, 2007 kl. 10:47
Oohh það getur verið svo erfitt að komast upp úr gryfjunni að éta “óhollt” þegar maður er á annað borð byrjuð .. kannast við það.
Gangi þér vel