11.28.07
prófastuð
Jæja, vona að síðan geti publishað núna…
Ég er bara alls ekki að standa mig vel þessa dagana, er komin í prófastress dauðans og er að reyna að fylgja stífri lestraráætlun til 19. des… enginn tími fyrir neitt jólaskap fyrr en þá! Ég er búin að snúa sólarhringnum við og skríð yfirleitt ekki fram úr fyrr en um kl. 13. Mataræðið er slæmt, ég finn að ég læt undan stressinu og kaupi mér nammi af því að mér finnst að mér eigi að langa í það, frekar en að mig langi raunverulega í það.
Hreyfingin er mjög lítil, fór einu sinni í ræktina í síðustu viku (mikið ofboðslega var það gott samt!) og einu sinni í dans.
Samt sá ég frekar óvænta tölu á vigtinni síðasta föstudag, eða 79,9 kg. Hef nú litla trú á því að þessi þyngd haldist eða minnki miðað við lifnaðinn á mér þessa dagana. Ætla allavega í ræktina á morgun, ansi hvetjandi að horfa á horrenglurnar í ANTM við brennsluna
11.11.07
testing
Er búin að reyna að blogga nokkrum sinnum en wordpress hefur aldrei viljað publisha, þetta er prufupóstur….