12.02.07

sveitasæla

Skrifað í Daglegt amstur, Vigtin kl. 17:46 af gellan

Það kom mér á óvart að sjá aftur 79,9 á vigtinni síðasta föstudag, ég kvarta ekki yfir því en skil það ekki heldur. Fór síðan með bekknum mínum á jólahlaðborð í hádeginu þar sem ég var voðalega lystarlaus, líkaminn minn vildi bara ekkert hafa með kjöt að gera svona snemma dags. Ég hafði aftur á móti fína lyst á eftirréttunum – semsagt lítið aðhald í gangi!

Núna ætla ég að vona að ég nái örlítið betri reglu á dagana hjá mér, ákvað að skreppa aðeins út á land til foreldra minna þar sem allri kennslu er lokið. Frekar notalegt á hótel mömmu og alltaf svo rólegt og afslappað í sveitinni… ætla líka að mæta í reglulega matartíma á heimilinu sem þýðir að ég þarf að vakna í morgunmat kl. 8 og fæ hollan mat reglulega yfir daginn án þess að þurfa að hugsa um það sjálf, þvílíkur lúxus! Og svo á að sjálfsögðu að massa lærdóminn á milli þess sem ég borða, nema hvað.

Hreyfingin mun einkennast af göngutúrum í sveitinni, væri fínt að komast í eins og einn svoleiðis á dag. Svaf betur í nótt en ég hef gert lengi. Hér er gott að vera…