01.17.08
loksins!
Jæja, ég er loksins að gera eitthvað í mínum málum, fór í ræktina í dag og tók 20 mínútna þrekæfingu á stigavélinni og 30 mín brennslu á bretti (var að labba á 5,6 km hraða í 2-3 % halla). Fékk voða endorfínkikk út úr því að hreyfa mig svona og var bara í voða góðu skapi á meðan og á eftir, fékk svo hausverk sem skyggði aðeins á fjörið.
Er búin að skoða nokkrar spennandi uppskriftir undanfarið og ákvað að elda kínverska ýsu a la Café Sigrún í kvöld, er b úin að skella flakinu í marineringu og bíð spennt, held að þetta verði rosa gott. Oh hvað mér finnst gaman að prófa nýjar uppskriftir, ætti að vera miklu duglegri við það!
Rakst á blogg fyndinnar ástralskrar stelpu sem kallar sig Dietgirl, hún náði að léttast um helming á nokkrum árum, eða úr 160 kg niður í tæplega 80… og það án annarra hjálpartækja en holls mataræðis og hreyfingar. Reyndar byrjaði hún upphaflega að fylgja Weight Watchers en hélt svo áfram á eigin spýtur þegar hún var komin á skrið. Þvílíkt afrek – og hér er ég að vandræðast yfir mínum 80 kg! Lokaþyngd hennar er mjög nálægt minni, hún er aðeins hærri en ég (173 cm en ég er 170) og manni finnst hún bara líta rosa vel út – hvað er maður að væla? Talandi um væl, þessi færsla hennar vakti mig sérstaklega til umhugsunar – mæli með því að fólk lesi hana.
Ég er að spá í að setja meiri áherslu á að tóna líkamann og stinna fyrir sundlaugarbakkann í útskriftarferðinni og fara því að lyfta svolítið, í stað þess að leggja ofuráherslu á brennslu. Held að það sé töluvert sannleikskorn í þessu: Cardio makes you look good wearing clothes, weight lifting makes you look good naked!
01.14.08
súpa
Var heima að læra og að hlusta á BBC Food með öðru eyranu og sá þessa uppskrift sem mér leist svo ansi vel á að ég prófaði hana núna í kvöld, mjög góð og einföld.
Grænmetissúpa með hrísgrjónum og sítrónu
1 laukur, fínt saxaður
2 hvítlauksrif, sömuleiðis
long grain hrísgrjón, 1-2 bollar
3 rósmaríngreinar
2 L kjúklingasoð
Þetta er allt látið malla saman í 40 mínútur, hrísgrjónin eiga að vera vel mauksoðin enda er þeirra hlutverk að þykkja súpuna.
3 kúrbítar, gróft rifnir
safi úr 1 sítrónu + rifinn börkur (ysta lagið)
salt og pipar
Eftir 40 mínúturnar er þetta látið út í pottinn og látið malla í 3-4 mínútur.
Þetta er uppskrift fyrir fjóra, ég helmingaði hana og samt dugar hún líklega aftur í kvöldmat fyrir okkur skötuhjúin á morgun. Reyndar slumpaði ég á hrísgrjónin og setti sennilega of mikið, þá verður þetta ansi matarmikið. Alltaf gaman að prófa að elda nýtt grænmeti, ég hafði aldrei eldað neitt úr kúrbít áður. Svo er mjög skemmtilegt að sjóða ferskar rósmaríngreinarnar í 40 mínútur, stilkarnir losna af greininni og gefa mjög gott bragð og lykt. Heppnaðist vel í alla staði – og hollt líka.
01.08.08
ekki dauð enn
Er ekki dauð úr öllum æðum þó ég hafi ekkert bloggað yfir jólin – enda var ekkert að gerast í megrunartengdum málum þá, nema síður sé…
Er búin að vera að koma mér inní rútínu aftur, skólinn byrjaði á mánudaginn og svefninn er að komast á rétt ról og mataræðið sömuleiðis. Ég er svolítið að velta fyrir mér hvort ég eigi að skoða kaloríur betur í því sem ég læt oní mig, jafnvel miða við að hafa þrjár máltíðir uppá 400 kcal og þrjú ,,snörl” uppá 100 kcal á dag svo heildarkaloríufjöldinn yrði í kringum 1500. Það er þó ekki ætlunin að hafa þetta hárnákvæmt heldur bara áætlað til að gera mér betri grein fyrir þessu. Ég er byrjuð að elda mér hafragraut á morgnana í staðinn fyrir þetta eilífa morgunkorn, haframjöl + vatni + smá salt bara skellt í skál og hent í örbylgjuofninn. Síðan borða ég hann með léttmjólk útá og t.d. rúsínum, kanil eða banana, hefði ekki trúað því að ég gæti sleppt sykrinum en það er bara ekkert mál. Þarf annars að fara í góða búðarferð og byrgja heimilið upp af hollum mat, það er bókstaflega ekkert til hérna.
Síðan ætla ég að sjálfsögðu að tækla ræktina á nýja árinu, er ennþá að ákveða plan, hvenær dagsins ég ætla að fara, hversu oft í viku og hvort ég ætla að lyfta mikið – úff, mér fallast svolítið hendur, er alltaf hálfhrædd um að það sem ég sé að gera í ræktinni sé ekki nógu gott og þá sit ég frekar heima, fullkomnunarárátta er harður húsbóndi! Fór þó allavega áðan og fjárfesti í armbandi svo ég geti fest iPodinn minn á upphandlegginn, gellan verður tæknilega sinnuð í ræktinni…
Vigtin stendur, ótrúlegt en satt, enn í stað, hún var reyndar 81,3 um daginn en var aftur komin niðrí 79,9 í morgun.
Ég læt vita á næstunni hvernig þetta verður hjá mér – stay tuned!