01.08.08

ekki dauð enn

Skrifað í Daglegt amstur, Hreyfing, Mataræði, Vigtin kl. 19:05 af gellan

Er ekki dauð úr öllum æðum þó ég hafi ekkert bloggað yfir jólin – enda var ekkert að gerast í megrunartengdum málum þá, nema síður sé…
Er búin að vera að koma mér inní rútínu aftur, skólinn byrjaði á mánudaginn og svefninn er að komast á rétt ról og mataræðið sömuleiðis. Ég er svolítið að velta fyrir mér hvort ég eigi að skoða kaloríur betur í því sem ég læt oní mig, jafnvel miða við að hafa þrjár máltíðir uppá 400 kcal og þrjú ,,snörl” uppá 100 kcal á dag svo heildarkaloríufjöldinn yrði í kringum 1500. Það er þó ekki ætlunin að hafa þetta hárnákvæmt heldur bara áætlað til að gera mér betri grein fyrir þessu. Ég er byrjuð að elda mér hafragraut á morgnana í staðinn fyrir þetta eilífa morgunkorn, haframjöl + vatni + smá salt bara skellt í skál og hent í örbylgjuofninn. Síðan borða ég hann með léttmjólk útá og t.d. rúsínum, kanil eða banana, hefði ekki trúað því að ég gæti sleppt sykrinum en það er bara ekkert mál. Þarf annars að fara í góða búðarferð og byrgja heimilið upp af hollum mat, það er bókstaflega ekkert til hérna.
Síðan ætla ég að sjálfsögðu að tækla ræktina á nýja árinu, er ennþá að ákveða plan, hvenær dagsins ég ætla að fara, hversu oft í viku og hvort ég ætla að lyfta mikið – úff, mér fallast svolítið hendur, er alltaf hálfhrædd um að það sem ég sé að gera í ræktinni sé ekki nógu gott og þá sit ég frekar heima, fullkomnunarárátta er harður húsbóndi! Fór þó allavega áðan og fjárfesti í armbandi svo ég geti fest iPodinn minn á upphandlegginn, gellan verður tæknilega sinnuð í ræktinni…

Vigtin stendur, ótrúlegt en satt, enn í stað, hún var reyndar 81,3 um daginn en var aftur komin niðrí 79,9 í morgun.

Ég læt vita á næstunni hvernig þetta verður hjá mér – stay tuned!

2 Ummæli »

  1. Heiða sagði,

    Ég segi bara frábært að þú hafir haldið þér í 79,9 kg yfir jólin :)

  2. verdandifit sagði,

    Ég öfunda þig ekkert lítið af því að vera 79,9 kg! Og já, það er um að gera að hugsa vel um sig þrátt fyrir að maður sé ekki nákvæmlega eins og maður vill vera. ;)


Rita ummæli