01.17.08

loksins!

Skrifað í Hreyfing, Mataræði, Pælingar, Uppskriftir kl. 19:33 af gellan

Jæja, ég er loksins að gera eitthvað í mínum málum, fór í ræktina í dag og tók 20 mínútna þrekæfingu á stigavélinni og 30 mín brennslu á bretti (var að labba á 5,6 km hraða í 2-3 % halla). Fékk voða endorfínkikk út úr því að hreyfa mig svona og var bara í voða góðu skapi á meðan og á eftir, fékk svo hausverk sem skyggði aðeins á fjörið.
Er búin að skoða nokkrar spennandi uppskriftir undanfarið og ákvað að elda kínverska ýsu a la Café Sigrún í kvöld, er b úin að skella flakinu í marineringu og bíð spennt, held að þetta verði rosa gott. Oh hvað mér finnst gaman að prófa nýjar uppskriftir, ætti að vera miklu duglegri við það!
Rakst á blogg fyndinnar ástralskrar stelpu sem kallar sig Dietgirl, hún náði að léttast um helming á nokkrum árum, eða úr 160 kg niður í tæplega 80… og það án annarra hjálpartækja en holls mataræðis og hreyfingar. Reyndar byrjaði hún upphaflega að fylgja Weight Watchers en hélt svo áfram á eigin spýtur þegar hún var komin á skrið. Þvílíkt afrek – og hér er ég að vandræðast yfir mínum 80 kg! Lokaþyngd hennar er mjög nálægt minni, hún er aðeins hærri en ég (173 cm en ég er 170) og manni finnst hún bara líta rosa vel út – hvað er maður að væla? Talandi um væl, þessi færsla hennar vakti mig sérstaklega til umhugsunar – mæli með því að fólk lesi hana.

Ég er að spá í að setja meiri áherslu á að tóna líkamann og stinna fyrir sundlaugarbakkann í útskriftarferðinni og fara því að lyfta svolítið, í stað þess að leggja ofuráherslu á brennslu. Held að það sé töluvert sannleikskorn í þessu: Cardio makes you look good wearing clothes, weight lifting makes you look good naked!

2 Ummæli »

  1. Dídí sagði,

    Hæhæ, fór að lesa bloggið hennar dietgirl eftir að ég las þessa færslu hjá þér og ég er alveg hooked, hún er rosalega góður penni! Takk fyrir ábendinguna!

    Kv, Dídí

  2. gellan sagði,

    Já, einhvern tímann tók ég mig til og las bloggið hennar allt frá upphafi – það var ekki leiðinlegt – og um leið mjög hvetjandi!

    Biðst annars velvirðingar á bloggleysi, er búin að blogga þrisvar en wordpress er með stæla og neitar að publisha :(


Rita ummæli