02.06.08
banani
Ekki langt í þetta skiptið en langaði bara að monta mig af ofsalega góða skyrbooztinu sem ég bjó til áðan:
1-2 lúkur frosin hindber
1 frosinn banani
slatti af hreinu KEA skyri
slatti af appelsínusafa (fer eftir hversu þykkt booztið á að vera)
Öllu skellt í blandara og svo sötrað með bestu lyst.
Hef ekki prófað að setja frosinn banana út í áður, það gaf mjög skemmtilegan keim. Sniðugt ef maður á banana sem eru komnir á síðasta snúning, að skella þeim í frystinn og nota í sjeik við næsta tækifæri. Sennilega best að afhýða þá fyrst, það var bölvað vesen að afhýða hann frosinn.
Fór í ræktina í gær og tók rosa fína þol/brennsluæfingu, beilaði á dansinum í dag vegna þreytu og afar tvísýnt er með að komast í ræktina á morgun, föstudaginn, laugardaginn eða sunnudaginn – allt brjálað að gera í skóla, djammi og fjölskylduveislum!
Svo er ég líka að fá hálsbólgu, góð tímasetning það ![]()
Jamm, líf og fjör…
02.05.08
Bolla
Jæja, loksins kom að því að wordpress leyfir mér að blogga – ekkert smá pirrandi, var búin að reyna allavega fimm sinnum og þar sem ég er ekki heimsins duglegasti bloggari fyrir þá er þetta ekki beint til að auka afköstin…
En já, get ekki sagt að ég hafi verið neitt gríðarlega öflug í ræktinni en þau skipti sem ég hef farið (2-3 í viku) hef ég tekið virkilega góðar æfingar, góðar lyftingar með massa harðsperrum eftir á í nokkra daga, mjög hressandi. Mataræðið er ágætt – þarf helst að passa skammtastærðirnar því ég er ekki að borða neitt óhollan mat yfirhöfuð en á það til að borða of lítið yfir daginn og borða síðan yfir mig í kvöldmatnum.
Borðaði enga bollu í dag, langaði samt í en fékk engin tækifæri til þess – sambýlismaðurinn borðar ekki bollur og ég var ekki að nenna að baka/fylla bollur fyrir mig eina en ætlaði kannski að rölta út í bakarí og kaupa svosem 1 stk. – en var í skólanum til næstum 19 í dag og komst því ekki. Æi það er nú í lagi – nýt þess bara að fá mér bollu á næsta ári þegar ég verð komin í kjörþyngd
Það verður allt brjálað að gera í þessari viku hjá mér, er í verklegum tímum í skólanum sem bjóða ekki upp á mikið frí en ætla að gera mitt besta til að komast a.m.k. tvisvar í ræktina, einu sinni í dans og að borða hollt – næsta vika verður síðan mun þægilegri.
Hef ekki vigtað mig í 2 vikur og get ekki sagt að ég sé stressuð yfir því, mér líður bara ágætlega með mig.