02.05.08
Bolla
Jæja, loksins kom að því að wordpress leyfir mér að blogga – ekkert smá pirrandi, var búin að reyna allavega fimm sinnum og þar sem ég er ekki heimsins duglegasti bloggari fyrir þá er þetta ekki beint til að auka afköstin…
En já, get ekki sagt að ég hafi verið neitt gríðarlega öflug í ræktinni en þau skipti sem ég hef farið (2-3 í viku) hef ég tekið virkilega góðar æfingar, góðar lyftingar með massa harðsperrum eftir á í nokkra daga, mjög hressandi. Mataræðið er ágætt – þarf helst að passa skammtastærðirnar því ég er ekki að borða neitt óhollan mat yfirhöfuð en á það til að borða of lítið yfir daginn og borða síðan yfir mig í kvöldmatnum.
Borðaði enga bollu í dag, langaði samt í en fékk engin tækifæri til þess – sambýlismaðurinn borðar ekki bollur og ég var ekki að nenna að baka/fylla bollur fyrir mig eina en ætlaði kannski að rölta út í bakarí og kaupa svosem 1 stk. – en var í skólanum til næstum 19 í dag og komst því ekki. Æi það er nú í lagi – nýt þess bara að fá mér bollu á næsta ári þegar ég verð komin í kjörþyngd
Það verður allt brjálað að gera í þessari viku hjá mér, er í verklegum tímum í skólanum sem bjóða ekki upp á mikið frí en ætla að gera mitt besta til að komast a.m.k. tvisvar í ræktina, einu sinni í dans og að borða hollt – næsta vika verður síðan mun þægilegri.
Hef ekki vigtað mig í 2 vikur og get ekki sagt að ég sé stressuð yfir því, mér líður bara ágætlega með mig.
Dídí sagði,
þriðjudagur, 5 febrúar, 2008 kl. 2:05
Í hvernig dans ertu og hvar? Langar svo að skella mér á námskeið í klassíku.
Við stútum annars bara nokkrum bollum að ári, þær verða líka miklu betri þá, samviskubitslausar og allt!
gellan sagði,
þriðjudagur, 5 febrúar, 2008 kl. 22:04
Ég og sambýlismaðurinn erum í samkvæmisdönsum hjá Jóni Pétri og Köru – það er voða gaman
Reyndar rölti ég framhjá bakaríi í dag og keypti eina bollu – og át hana bara með bestu lyst! Þær eru nú samt betri sem ég baka sjálf. En þetta verður eina óhollustan hjá mér yfir þessa dagana, ég borða ekki saltkjöt og baunir, fæ mér ekki nammi á öskudag og fer ekki á þorrablót, þannig að EIN bolla í þessari átorgíu landans er nú ekki nein ósköp.
Dídí sagði,
miðvikudagur, 6 febrúar, 2008 kl. 1:47
Mig langar einmitt svo í samkvæmisdansana, er þetta rosalega dýrt?
gellan sagði,
miðvikudagur, 6 febrúar, 2008 kl. 23:17
Nei, ekki nema um 17 þús á mann fyrir önnina, minnir mig…