02.06.08
banani
Ekki langt í þetta skiptið en langaði bara að monta mig af ofsalega góða skyrbooztinu sem ég bjó til áðan:
1-2 lúkur frosin hindber
1 frosinn banani
slatti af hreinu KEA skyri
slatti af appelsínusafa (fer eftir hversu þykkt booztið á að vera)
Öllu skellt í blandara og svo sötrað með bestu lyst.
Hef ekki prófað að setja frosinn banana út í áður, það gaf mjög skemmtilegan keim. Sniðugt ef maður á banana sem eru komnir á síðasta snúning, að skella þeim í frystinn og nota í sjeik við næsta tækifæri. Sennilega best að afhýða þá fyrst, það var bölvað vesen að afhýða hann frosinn.
Fór í ræktina í gær og tók rosa fína þol/brennsluæfingu, beilaði á dansinum í dag vegna þreytu og afar tvísýnt er með að komast í ræktina á morgun, föstudaginn, laugardaginn eða sunnudaginn – allt brjálað að gera í skóla, djammi og fjölskylduveislum!
Svo er ég líka að fá hálsbólgu, góð tímasetning það 
Jamm, líf og fjör…
Heiða sagði,
mánudagur, 11 febrúar, 2008 kl. 17:21
Mmmm hljómar girnó
Ætla að prófa þennan!
Dídí sagði,
mánudagur, 11 febrúar, 2008 kl. 21:00
Ég geri mér stundum boost en mér finnst ekki gott að setja banana í það, finnst það verða svo leiðinlega frothy…