04.06.08

6 vikur!

Skrifað í Hreyfing, Mataræði kl. 17:33 af gellan

Lítið hefur gerst í heilsuræktarmálum undanfarið, bæði vegna álags í skóla og þrálátra veikinda sem hafa ákveðið að herja á lungun mín. Skellti mér í ræktina í gær í fyrsta sinn í tvo mánuði (!) og komst að því mér til mikillar ánægju að lungun þoldu álagið ágætlega.
Núna eru tæplega 6 vikur í útskriftarferðina miklu og ekki seinna vænna að fara að gera eitthvað í sínum málum, veit að ég verð nú aldrei bikinímódel á þeim tíma, takmarkið er frekar að gera mitt besta svo ÉG sjái á mér mun og verði ánægðari með mig. Ætla því að skella mér í ræktina 4 sinnum í viku og lyfta (er með tvískipt prógram) og taka 45-60 mínútna brennslu á eftir + 75 mínútna dansæfing einu sinni í viku.
Í mataræði ætla ég að setja áherslu á það að borða 6 sinnum á dag og borða tiltölulega hollan venjulegan mat, hafa nammidag einu sinni í viku.

Voðalega er ég nú annars óheppin með það hvað stelpurnar í bekknum mínum eru yfirhöfuð flottar og grannar skvísur, samanburðurinn getur aldrei orðið mér í hag á ströndinni… ég verð bara að láta það vera hvatningu til að vera dugleg.

1 ummæli »

  1. Dídí sagði,

    Það á enginn eftir að gera samburð á ykkur ef þú ert með sjálfsálitið í lagi! Þá tekur enginn eftir nokkrum aukakílóum. :) Bara endilega vertu dugleg þangað til og byggðu upp sjálfstraustið í leiðinni, vertu svo bara ánægð með þig og njóttu þín í útskriftarferðinni!

    Gangi þér vel, hlakka til að fylgjast með. :)


Rita ummæli