04.08.08

38 dagar til stefnu!

Skrifað í Hreyfing, Mataræði kl. 0:21 af gellan

Er að spá í að halda matar- og æfingadagbók, allavega svona til að byrja með.

Matur

stór skál hafragrautur með 1 lúku af rúsínum og léttmjólk
lítið glas ávaxtasmoothie (froosh)
500 ml vatn

1 pera
nokkrar hnetur (pistasíur og hunangshnetur)

1 lítið hrökkbrauð með smurosti
500 ml vatn

Túnfisksalat:
1 dós túnfiskur í vatni
2 harðsoðin egg
sýrður rjómi 10%
1/2 rauðlaukur
4 tsk Dukkah með valhnetum og chili
smá aromat
500 ml vatn

ca. 500 ml vatn á æfingu

2 pistasíur og nokkrar hunangshnetur
lítið glas froosh
1/2 L Létt AB-mjólk með eplum og gulrótum
1 klementína

Gróft útreiknað: ca. 1300 kcal

Þetta er nú ekki mjög mikið af kalóríum, fannst ég samt vera eiginlega pakksödd í dag, var mjög södd eftir bæði hafragrautinn og túnfisksalatið.

Æfing:

upphitun á bretti í 10 mín
lyftingar (efri partur)
60 mín brennsla á skíðum, bretti og hjóli

Ahh, líður frábærlega eftir góðan dag!

3 Ummæli »

  1. Dídí sagði,

    Flottur dagur. :) Þetta er held ég alveg nóg af hitaeiningum, er oft talað um 1200-1500 þegar maður er í átaki.

    Gangi þér vel. :)

  2. gellan sagði,

    Já en miðað við hvað ég er að hreyfa mig mikið held ég að ég ætti að passa mig að borða nóg, ég vil nefnilega ná að byggja vöðvana aðeins upp og ég vil brenna fitunni, ekki svelta hana af ;)
    Skv. prógramminu mínu ætti ég að vera að borða 1800-2000 kal og samt ná að grennast, hugsa að ég reyni kannski að halda mig á bilinu 1500-1800.
    En auðvitað á maður bara að hlusta á líkamann og passa að verða aldrei of svangur eða orkulaus né heldur að éta yfir sig.

  3. Dídí sagði,

    Já, náttúrulega ef maður er alveg á fullu í ræktinni þarf maður meira. :)


Rita ummæli