04.09.08
36 dagar
Matur:
hafragrautur með 1 lúku af rúsínum og léttmjólk
1 glas appelsínusafi
1 bolli grænt te
1 banani
nokkrar baby gulrætur
skyr.is drykkur
1/2 L vatn
1/2 L létt ab mjólk með eplum og gulrótum
1 lítill diskur kjúklingur í thai choice green curry sósu (fitulítil og góð) með hýðishrísgrjónum og soðnu grænmeti, með skvettu af tamari sósu
1 sykurskert kókómjólk
2 glös af vatni á æfingu
stór diskur af sama kjúklingarétt (svöng!)
1/2 L vatn
enn svöng svo:
1 skál hafragrautur með kanil og sætuefni og 1 glas ávaxtasafi
Frekar asnalegur og leiðinlegur dagur, fór að mestu leyti í hópavinnu uppí skóla þar sem unnið var í afar óspennandi verkefni. Fékk síðan að vita að ég hefði fengið lægstu einkunnina í bekknum fyrir annað hópverkefni sem blóð, sviti og tár fóru í að gera, var nú bara í hálfgerðu sjokki yfir því þar sem ég er nú iðulega á hinum endanum á einkunnaskalanum… svekkelsi. Borðaði líka of lítið fyrri part dags, var orðin glorhungruð og pirruð um fimmleytið þegar ég kom heim og fékk mér ab mjólk.
Fór síðan á ágætis dansæfingu þar sem fýlan var dönsuð burt með 75 mínútna púli og er búin að vera svöng síðan þá. Langaði allt í einu gífurlega í GULRÓTARKÖKU með miklu rjómaostskremi, fékk mér í staðinn kanilhafragraut og ávaxtasafa.
Yfir og út – gellan sem kann ekki að fá 7 !!