04.11.08

34 dagar

Skrifað í Hreyfing, Mataræði kl. 23:01 af gellan

Matur:

1 skál Cheerios með léttmjólk
1 glas ávaxtasmoothie

1 banani
baby gulrætur
1/2 L létt ab-mjólk
1 L vatn drukkinn í skólanum
1 bolli grænt te

2 hrökkbrauð, annað með léttsmurosti, hitt með hummus
1 kaffijógúrt

1 Firefly drykkur (detox: með sítrónu, lime og engifer)

Taílenskar risarækjur með hvítlauk, pipar og grænmeti
Smá massaman karrí með nautakjöti
Hrísgrjón
1 lítill bjór

Hálft lakkrísdúndur í eftirrétt
1/2 L pepsi max

Hreyfing: 40 mínútna rösklegur göngutúr.

Svaf í 4 tíma í nótt vegna lærdóms og stresss… Var þess vegna engan veginn að höndla það að fara í ræktina þegar ég kom heim eftir strangan skóladag. Dreif mig samt út í göngutúr. Síðan höfðum við kærastinn það notalegt, fórum út að borða á taílenskan veitingastað og fórum síðan heim að horfa á dvd. Mig langaði svo í meiri bjór eftir að ég var búin að drekka einn, mmmmmm… beer… en í staðinn splæsti ég á mig Pepsi max (hef ekki drukkið það núna í a.m.k. 2 vikur) og síðan skiptum við einu súkkulaði á milli okkar, við kunnum okkur ágætis hóf að þessu leyti og borðum sjaldan nammi eða snakk.
Svo er það bara ræktin á morgun á fullum krafti… og síðan sukkerí um kvöldið reyndar, rauðvínskvöld með bekkjarsystrum mínum. Ætla samt að reyna að verða ekkert þunn svo ég komist í ræktina á sunnudaginn og passa að tapa mér ekki alveg í góðgætinu sem verður á boðstólum.

2 Ummæli »

  1. Dídí sagði,

    Vona að þú hafir átt góða helgi. :)

  2. gellan sagði,

    Takk fyrir það og sömuleiðis! Hún var voða ljúf…


Rita ummæli