04.11.08

35 dagar

Skrifað í Hreyfing, Mataræði kl. 0:09 af gellan

Matur:

1 banani
nokkrar rúsínur

hafragrautur með 1 lúku af rúsínum og léttmjólk
1 glas ávaxtasafi
1 bolli grænt te

1 hrökkbrauð með hummus
baby gulrætur
1/2 L vatn

skyr.is drykkur
1 hrökkbrauð með léttsmurosti

1 glas ávaxtasmoothie
1/2 EAS próteinbar
1/2 L sódavatn

1/2 próteinbar

Tvö hrökkbrauð, annað með léttsmurosti, hitt með hummus

Lítill diskur kjúklingarétturinn góði (já, ég eldaði mikið um daginn!)
1/2 L sódavatn

Smá pasta úr pastabakka sem kærastinn var að gæða sér á
1 lítið glas froosh

Finnst ég ekki hafa gert annað en éta í dag – en alltaf mjög lítið í einu, sem þýddi að ég varð strax svöng aftur. Það var ekki skóli í dag svo ég var bara að heima að læra – enda próf, verkefnaskil og ég þarf að flytja fyrirlestur, allt á morgun. Kosturinn við að vera heima hjá sér er auðvitað að auðvelt er að labba sér inn í eldhús og fá sér að borða, eitthvað hollt auðvitað!

Þetta mynstur er svo ólíkt því sem ég var orðin föst í, þ.e. að borða eiginlega alltof lítið yfir daginn (var samt ekkert svöng enda brennslan sjálfsagt á núllpunkti, líkaminn að halda í fitubirgðirnar) og borða síðan alltof mikið í kvöldmat. Núna líður mér bara eins og ég sé mannlegur arinn sem brennir og brennir eldivið og vill sífellt meira! Það vil ég allavega ímynda mér, hehe. Og ég er að fara sofa rétt bráðum og er ennþá svöng!

Hreyfing: 40 mínútna göngutúr í morgun. Bætir, hressir, kætir og kemur brennslunni af stað. Frí í ræktinni í dag vegna náms…

Rita ummæli