04.13.08

32 dagar

Skrifað í Hreyfing, Mataræði kl. 22:05 af gellan

Jæja, dagurinn í gær var fínn, fór í ræktina og tók góða æfingu, lyftingar og 60 mínútna brennsla. Fór reyndar að finna fyrir í lungunum aftur, frekar leiðinlegt. Mataræðið var tipp-topp fram að kvöldi, þá tók við rauðvínssötur og alls konar gúmmilaði. Varð frekar fljótt södd, gat sem betur fer ekki troðið endalaust í mig – en góðar voru veitingarnar. Eftir stutt stopp í bænum (voðalega finnst mér eitthvað sjaldan gaman að djamma niðri í bæ…) fór ég bara heim. Stóð við planið mitt um að verða ekki þunn en fór þó ekki í ræktina, bæði vegna téðra lungnavandamála og að mér tókst að fá myndarlega blöðru á ilina við að labba heim úr bænum á óþægilegum stígvélum. Sveiattan!

Mataræðið í dag hefði nú mátt vera betra, er m.a. búin að borða tvær beyglur, alls ekki búin að borða nógu oft og eitthvað svona slen yfir manni… allt í allt er ég þó mjög ánægð með þessa fyrstu viku mína, kom í raun sjálfri mér á óvart hvað ég fór létt með þetta og langaði sjaldan í óhollustu.
Núna er líka ekkert djamm fram að útskriftarferð þannig að áfengið er nú ekki að fara að spilla fyrir manni.

2 Ummæli »

  1. 15kg sagði,

    Var að kommenta á eina af undirsíðunum en geri það líka hérna :)
    Sé að við erum á mjög svipuðum stað í okkar átaki og jafnháar, þú ert með örlítið forskot. Mun fylgjast með þér, vona að þér sé sama að ég setji link á þig hjá mér.

  2. sperra sagði,

    Læra læra og æfa æfa. Það er víst mottóið næstu vikurnar. Vildi bara láta þig vita að sperran er að vakna til lífsins, vonandi bara langlífi framundan ;)


Rita ummæli