04.15.08
30 dagar
Dagurinn í gær var fínn, tók lyftingar (neðri part) í ræktinni og kom sjálfri mér á óvart hversu gríðarlegur styrkur liggur í þessum löppum mínum, tókst að lyfta 12 x 85 kg, svo 12 x 90 kg og að lokum 12 x 95 kg í einu tækinu! Tókst líka að þyngja í öllum æfingum en fann varla fyrir harðsperrum í dag.
Matur (í dag):
hafragrautur með súkkulaðisojamjólk (hún er ekki orkulítil en ákvað að prófa til að peppa upp á grautinn, rosa er hún góð! Passa mig samt á henni, inniheldur slatta af sykri, borða því ekki rúsínur með grautnum)
stórt glas nýpressaður trópí
1 bolli grænt te
1 epli
1/2 L vatn
1 flatkaka með léttsmurosti
1 lítil skyrdós
1 próteinbar
1/2 L vatn
nokkrar pistasíur
1 lítið glas froosh
1/2 L sódavatn
1 lítill diskur kjúklingaréttur með brúnum hrísgrjónum og spergilkáli, í brasilískri krukkusósu (svipuð og salsasósa, fitulítil og góð)
1 lítið glas súkkulaðisojamjólk
1 flatkaka með ostsneið (17 %)
Hreyfing:
35 mínútna göngutúr
Fór ekki í ræktina í kvöld, gleymdi mér í lærdóm og borðaði kvöldmatinn of seint og fór líka í eitthvað lærdómspanikk, fannst ég ekki hafa gert neitt af viti í dag og að ég yrði nú að vera duglegri. Ekki gott. Verð að fara að vakna fyrr á morgnana svo ég sé ánægð með dagsverkið og geti leyft mér að fara í ræktina á kvöldin. Er nefnilega týpan sem kemst ekki í gang að læra fyrr en uppúr hádegi og læri venjulega framyfir miðnætti og gengur hrikalega illa að vakna á morgnana. Á sama tíma vil ég fara í ræktina á kvöldin, slaka síðan vel á í gufunni og koma þreytt heim og skríða uppí rúm.
Er líka búin að ákveða að vera ekki að setja áherslu á að brenna og lyfta á sömu æfingu, það verður bara svo löng æfing, alveg 2 tímar… og hátt í þrír tímar með sturtu, gufu og því að koma sér í ræktina og aftur heim. Held ég reyni því að fara oftar en hafa styttri æfingar.