04.18.08

28 dagar

Skrifað í Hreyfing, Mataræði kl. 13:40 af gellan

(Ætlaði að blogga í gær en netið var með vesen)

Matur:

1 glas súkkulaðisojamjólk

hafragrautur með léttmjólk og rúsínum
1/2 glas froosh
1 bolli grænt te

1 lítil skyrdós
1/2 L vatn

2 lítil hrökkbrauð með léttsmurosti, tvö með kotasælu og eitt með 26% ostsneið
1/2 L vatn

stór diskur kjúklingarétturinn frá því á þriðjudaginn, með smá 10 % sýrðum rjóma
1/2 L vatn

lítill diskur kjúklingaréttur
afgangurinn af súkkulaðibúðingnum síðan í gær + 1 kiwi brytjað út á.

Hreyfing:
40 mínútna göngutúr
Upphitun á skíðum (70 kcal), lyftingar (efri partur) 45 mínútna brennsla á bretti (302 kcal)

Mjög góð æfing hjá mér í gær, tókst að þyngja ágætlega í flestum lyftingum, varð ekkert smá glöð að geta þyngt í brjóstpressunni enda er það minn veikasti punktur (og axlirnar líka). Ætlaði síðan að stökkva á brettið í 20 mínútur og horfa á Klovn (ógeðslega fyndnir þættir) en dagskránni var eitthvað seinkað þannig að ég endaði á því að vera á brettinu í 45 mínútur, kvarta svosem ekki yfir því.

Svo er takmarkið að taka 60 mínútna brennslu í dag, þvílík viðbrigði, mér finnst það bara vera mjög stutt æfing!

1 ummæli »

  1. Dídí sagði,

    Það er svo gaman að finna muninn þegar maður getur farið að þyngja. :)


Rita ummæli