04.26.08

19 dagar

Skrifað í Daglegt amstur, Hreyfing, Mataræði kl. 17:23 af gellan

Vá, 19 dagar… það er alveg ótrúlega stutt!

Ég er ekki dauð úr öllum æðum enn, fór í próf á mánudaginn síðasta og búin að vera frekar slöpp síðan þá, átti síðan 25 ára afmæli á miðvikudaginn, fór út að borða á Humarhúsið með kærastanum… og fór út að borða í hádeginu í dag með vinum mínum, af sama tilfefni.
Mataræðið hefur ekki verið tipp-topp en ég er þó ekki dottin í neitt sukk. Lungnavesenið mitt hefur verið með smávegis kombakk, með hitavellu og eyrnaverk, en er orðin þokkaleg í dag svo ég held ég treysti mér í ræktina á morgun, hef annars verið dugleg að fara út að labba í síðustu viku þó ég hafi ekki farið í ræktina síðan á föstudaginn.

Ég verð að segja að það skiptir mig gríðarlegu máli að hafa staðið mig svona vel bæði í ræktinni og í mataræði í 2 vikur, það er langt síðan mér hefur tekist eitthvað sambærilegt. Ég hef lést um ca. 1 kg á þessum tíma og – það sem skiptir aðalmáli – sé bara ágætis mun á líkamanum, bumban er minni og ég er öll aðeins stinnari og flottari. Prófabakverkurinn hefur heldur ekkert látið á sér kræla.
Ég er semsagt búin að sanna það fyrir sjálfri mér að ég geti þetta alveg og að árangurinn muni pottþétt koma. Frá og með morgundeginum mun ég halda áfram á þessari góðu braut, skrifa matardagbók og halda mig við ræktarprógrammið.

Best að ráðast aðeins á bækurnar… ég er víst í prófum líka :(

Hreyfing dagsins: 50 mínútna rösklegur göngutúr í góða veðrinu

1 ummæli »

  1. Dídí sagði,

    Próf er sko ekkert skemmtileg… :? En svo þegar þau eru búin þá er maður svo glaður! :D

    Vona að allt gangi vel skvís. :)


Rita ummæli