05.02.08
x dagar
Er búin að vera drulluslöpp, sit heima og læri og líður illa bæði andlega og líkamlega, bæði út af stressi og pirringi yfir því að komast ekki í ræktina. Fór aðeins út að labba í dag og var bara alveg búin á því þegar ég kom heim, ömurlegt!
Mataræðið hefur setið eitthvað á hakanum, reyndar er það yfirleitt fínt fyrri hluta dags en ég er farin að leyfa mér ýmislegt í kvöldmat og á kvöldin sem er nú ekki alveg eftir bókinni. Fékk mér t.d. smá ís áðan og drakk rauðvín í gær með kvöldmatnum. Ég á voða erfitt með að neita mér um hluti þegar ég vorkenni mér, ég á svo gríðarlega bágt að vera lasin og í prófum…
Jæja, próf á laugardaginn, best að drífa sig í bælið svo ég geti tekið almennilega törn á morgun… vi ses.
Heiða sagði,
laugardagur, 10 maí, 2008 kl. 14:38
Oh próf eru svo leiðinleg! Ég er ekki búin að komast í ræktina í 10 daga núna!!! Það er ömurlegt.
Varð einmitt líka veik í síðustu viku. Það er alveg svakalega stressandi að vera lasinn í prófum. Ég missti alveg heilan dag úr þar sem ég gat bara nákvæmlega ekkert, meikaði ekki einu sinni að fara á fætur. Og svo 2 dagar eftir það var ég voðamikil tuska eitthvað
En nú er þetta alveg að verða búið
Dídí sagði,
þriðjudagur, 10 júní, 2008 kl. 23:18
Hvernig gengur skvís?