07.16.08

vinnivinn

Skrifað í Hreyfing, Mataræði kl. 17:36 af gellan

Jæja, ég er komin í ágætis rútínu og búin að setja upp lauslegt langtímaplan: ég byrja á því að mæta í ræktina 4x í viku, tek brennslu/þol og lyftingar til skiptis. Ég labba auk þess alltaf í vinnuna og heim aftur og þannig bætist við auka 40 mínútna brennsla fimm sinnum í viku.
Þegar mér finnst ég mega við meiri æfingu (kannski eftir 1-2 mánuði) þá fer ég í ræktina 5 sinnum í viku og aðlaga æfingarnar að því þegar þar að kemur. Hvort það muni síðan einhvern tímann fara upp í sex sinnum í viku verður bara að ráðast, fer eftir tímanum sem ég hef og þeim markmiðum sem ég vil ná.

Mataræði: er í ágætis rútínu-skorðum, borða lítið af óhollum mat dags daglega (ekkert nammi, snakk, kex, kökur eða skyndibita). Ætla að fínpússa mataræðið þegar ég er komin með ræktina 100% á hreint, ætla að einbeita mér að einu í einu fyrst um sinn, hafa þetta einfalt svo mér fallist ekki bara hendur og gefist upp eins og venjulega.

Og þetta plan mun eflaust þroskast og fínpússast á ýmsan veg en takmarkið er að útskrifast í júní 2009 og vera komin í frábært form í einhverjum æðislegum kjól ;uppi á sviði ;)

Er búin að léttast aðeins en ætla ekkert að einblína á þær tölur fyrst um sinn.

07.07.08

labbilabb

Skrifað í Hreyfing, Mataræði, Vigtin kl. 18:34 af gellan

Jæja, long time no see!

Kom heim úr frábærri næstum 4 vikna útskriftarferð þann 10. júní, þar var ekki verið að spara við sig í mat né drykk… kom heim nokkrum peningum fátækari og kílóum ríkari en með bros á vör og smávegis brúnku. Var voða lengi að koma mér inn í rútínuna, var að byrja í nýrri vinnu og ætlaði síðan aldeilis að tækla hlaupaplan, var með takmarkið að þjálfa mig upp í að geta hlaupið 5 km á fínu nýju hlaupaskónum mínum. Eftir nokkrar misheppnaðar og sársaukafullar skokkæfingar komst ég að þeirri niðurstöðu að hlaup hentuðu mér ekki í bili vegna beinhimnubólgu. Var ansi svekkt og fúl yfir þessu enda orðin mjög spennt fyrir því að hlaupa. Dó þó ekki ráðalaus og fann mér labbiplan á netinu hjá honum ,,vini mínum” Hal Higdon sem ég er byrjuð að fylgja, gekk núna áðan í 35 mínútur í glampandi sól og steikjandi hita með góða tónlist í eyrunum. Hugmyndin er síðan að fylgja þessu plani auk þess að lyfta tvisvar í viku og gera líka einhverjar þolæfingar aðrar en hlaup í ræktinni, s.s. þrep eða skíðavél. Voðalega finnst mér samt erfitt að fara inn á líkamsræktarstöð þegar veðrið er svona fínt! (hef einmitt ekki fengið mig til þess ennþá….) Vonandi næ ég þá smám saman að léttast og ná upp þoli svo ég geti farið að reyna við hlaupin aftur.

Mataræði: ágætt fyrir utan bakkelsi og nammi sem alltaf er frammi á borði í vinnunni og of auðvelt er að grípa í með kaffinu, ekki síst þegar maður er þreyttur og stressaður. Þarf líka að passa að reyna að borða einhvern millibita (skyr) milli morgunmatar og hádegismatar, oft er svo mikið að gera í vinnunni fyrir hádegi að ég kemst ekki einu sinni á klósettið, hvað þá til að fá mér eitthvað að borða!

Voðalega er ég orðin þreytt á því að vera alltaf á byrjunarreit. Þetta verður síðasta skiptið!

Þyngdin núna: í kringum 84 kg (var 80 áður en ég fór út)